EasyManua.ls Logo

KitchenAid 5KCM1209 - Page 127

KitchenAid 5KCM1209
196 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
IS
127
NOTKUN VÖRUNNAR
STILLING Á AUTO SET 1 OG AUTO SET 2 AÐGERÐUNUM
MIKILVÆGT: Stillið klukkuna rétt samkvæmt leiðbeiningunum „Klukkan stillt“ áður en sjálfvirk
aðgerð er notuð.
Kaffivélin þín er með tvo valkosti til að forstilla tíma. Auto Set 1 og Auto Set 2 gera þér kleift að
forstilla kaffilögunartímann tvisvar á viku eða dag.
Þú getur valið um að nota Auto Set 1 til að forstilla kaffilögunartíma fyrir virka daga og Auto Set
2 er hægt að forstilla fyrir helgar. Eða, ef þú vilt það frekar, þá geturðu notað Auto Set 1 til að
forstilla kaffilögunartíma fyrir morgunkaffið og Auto Set 2 fyrir kvöldkaffið.
ATHUGIÐ: Þegar kaffivélin er fyrst sett í samband, eða þegar rafmagn kemur aftur á eftir
rafmagnsleysi, sýnir skjárinn 12:00.
MIKILVÆGT: Gættu þess að stilla klukkuna rétt samkvæmt leiðbeiningunum „Klukkan stillt“
áður en Auto Set 1 eða Auto Set 2 stillingarnar eru notaðar.
1. Ýtið á Auto1 eða Auto 2 hnappinn einu sinni. Gaumljósið fyrir Auto 1 eða 2 mun blikka og
skjárinn fyrir klukkuna mun breytast til að stilla á Auto Set 1 eða 2 tímann (12:00 er
sjálfgefinn tími).
Til að stilla tímann sem kaffivélin á að byrja að laga kaffi: Ýtið á H hnappinn til að stilla
klukkutímann. Klukkutímatölurnar breytast í hvert skipti sem ýtt er. Einnig má ýta og halda
niðri til að breyta tölunum hratt.
2. Ýtið næst á Min hnappinn til að stilla mínúturnar. Klukkutímastillingin helst áfram og
mínútustillingin fer að blikka.
Til að vista Auto set 1 eða Auto Set 2 tímann og hætta í uppsetningu: Ýtið á einhvern
annan hnapp eða ekki ýta á neina hnappa í 10 sekúndur. Gaumljósið fyrir Auto 1 eða 2
mun lýsa áfram og skjárinn fyrir klukkuna mun fara aftur á núverandi tíma.
RÁÐ: Til að hætta við Auto Set 1 eða 2 tímann eftir að uppsetningu er lokið: Ýtið á Auto 1
eða Auto 2 hnappinn aftur eða ýtið á
hnappinn.
ATHUGIÐ: Sjálfgefinn tími til að laga fulla könnu af kaffi (12 bolla) er um það bil
10 mínútur.
NOTKUN Á AUTO SET 1 EÐA 2 TÍMA SEM BÚIÐ ER AÐ STILLA
Hægt er að fylgja þessum skrefum til að vista tímann fyrir Auto Set 1 eða Auto Set 2 aðgerð
eftir að búið er að fylgja skrefunum í kaflanum „Stilling á Auto Set 1 og Auto Set 2
aðgerðunum“.
1. Ýtið á Auto 1 eða Auto 2 hnappinn. Gaumljósið fyrir Auto 1 eða 2 mun blikka og skjárinn
fyrir klukkuna mun sína tímann fyrir Auto 1 eða Auto 2 aðgerð sem búið er að stilla.
2. Til að vista tímann og hætta í uppsetningu: Ýttu á einhvern annan hnapp eða ekki ýta á
neina hnappa í 10 sekúndur. Gaumljósið fyrir Auto 1 eða 2 mun lýsa áfram og skjárinn fyrir
klukkuna mun fara aftur á núverandi tíma.

Table of Contents