104
Hafðu samband við Artasan ehf., umboð Microlife á Íslandi ef
meðfylgjandi handleggsborði AL passar ekki.
Tengdu handleggsborðann við tækið með því að stinga tengi
handleggsborðans AN eins langt og það kemst inn í
innstunguna 6.
Notandi valinn
Tækið vistar niðurstöður fyrir tvo notendur.
Veldu notanda (notandi 1 eða 2 BN) með því að ýta á
notendahnappinn 5.
Veldu venjulega eða MAM stillingu
Fyrir hverja mælingu veldu venjulega (ein mæling) eða MAM
stillingu (sjálfkrafa þrjár mælingar). Með MAM stillingu eru þrjár
mælingar gerðar sjálfkrafa í röð og niðurstaðan er svo sjálfkrafa
greind og birt á skjánum. Vegna þess að blóðþrýstingurinn
sveiflast stöðugt þá er niðurstaðan áreiðanlegri á þennan hátt
heldur en þegar ein mæling er gerð.
Til að velja MAM stillingu, renndu MAM hnappnum 7 upp í
stöðu «3» þangað til MAM-merkið BO birtist á skjánum. Til að
breyta yfir í eina mælingu, renndu MAM hnappnum niður í stöðu
«1».
Neðst til hægri á skjánum birtist talan 1, 2 eða 3 til að sýna
hvaða mæling er í gangi.
Það er 15 sekúndna pása á milli mælingana. Niðurtalning gefur
til kynna tímann sem er eftir.
Einstaka niðurstöður eru ekki birtar. Blóðþrýstingurinn birtist
aðeins þegar öllum þremur mælingunum er lokið.
Ekki fjarlægja handleggsborðann á milli mælinga.
Ef ein mæling skilar vafasömum niðurstöðum er sjálfkrafa mælt
í fjórða sinn.
3. Gátlisti fyrir áreiðanlega mælingu
Forðastu að hreyfa þig, borða eða reykja rétt áður en mælt er.
Sestu á stól með baki og slakaðu á í 5 mínútur. Hafðu fæturnar
á gólfinu, ekki krossleggja fætur.
Mældu alltaf sama handlegg (að jafnaði þann vinstri). Mælt er
með því að læknar mæli báða handleggi við fyrstu skoðun
sjúklings svo unnt sé að ákveða hvaða handlegg skuli mæla í
framtíðinni. Mæla skal þann handlegg sem hefur hærri
blóðþrýsting.
Farðu úr flíkum sem þrengja að upphandleggnum. Til að forðast
að þrýsta á æðarnar skal ekki bretta upp ermar – þær trufla ekki
handleggsborðann ef þær eru sléttar.
Gættu þess að nota alltaf handleggsborða í réttri stærð (sjá
merkingu á handleggsborða).
Láttu handleggsborðann falla þétt að, þó ekki of þétt.
Gættu þess að staðsetja handleggsborðann um 1-2 cm fyrir
ofan olnboga.
Slagæðarmerkið á handleggsborðanum (u.þ.b. 3 cm langt
strik) verður að liggja yfir slagæðinni en hún liggur niður
innanverðan handlegginn.
Styddu við handlegginn svo það slakni vel á honum.
Gættu þess að handleggsborðinn sé í sömu hæð og hjartað.
4. Blóðþrýstingmæling tekin
Veldu venjulega (ein mæling) eða MAM stillingu (sjálfkrafa þrjár
mælingar): sjáðu upplýsingar í kafla 2.».
Ýttu á ON/OFF hnappinn 1 til að hefja mælinguna.
Handleggsborðinn blæs nú sjálfkrafa upp. Slakaðu á, þú skalt
hvorki hreyfa þig né spenna handleggsvöðvana fyrr en
niðurstöður mælingarinnar hafa birst. Andaðu eðlilega og
talaðu ekki.
Handleggsborða athugun AR á skjánum gefur til kynna að
handleggsborðinn sé á réttum stað. Ef merkið BT-A birtist er
handleggsborðinn sæmilega staðsettur en það er samt í lagi að
mæla.
Þegar réttum þrýstingi er náð hættir tækið að pumpa lofti og
þrýstingur minnkar smám saman. Ef réttur þrýstingur næst ekki
L 32 - 42 cm
L - XL 32 - 52 cm
Notaðu eingöngu Microlife handleggsborða.
Ef þú kaupir auka Microlife handleggsborða, vinsamlegast
fjarlægðu tengið AN af slöngunni á handleggsborðanum AM
sem fylgir með mælinum og settu tengið inn í slönguna á
auka handleggsborðanum (gildir fyrir allar stærðir af hand-
leggsborða)
Fyrir hverja mælingu, vertu viss um að réttur notandi sé
valinn.
Stærð handleggsborða Ummál upphandleggs
Greining gáttatifs er aðeins virkt með MAM stillingu.