35
Heildarmál: 67,3 cm breidd x 35,8 dýpt cm x 41,9 cm hæð
Þyngd: 28 kg.
Hámark Þyngdarmörk á hvern hliðarbakka: 5 kg.
Hámark Heildarþyngd á sætið (þ.m.t. áhöld): 204 kg.
VARÚÐ Ef allar viðvaranir eru ekki lesnar eða ekki er farið eftir þeim getur það leitt
til skemmda á eignum eða slysa á fólki. Sýnið ávallt aðgát þegar unnið er með
verkfæri.
Gætni við samsetningu
• Fylgið einungis þessum leiðbeiningum um samsetningu. Röng samsetning getur
skapað hættu.
• Notið persónuhlífar, þ.m.t. ANSI Z87.1- samþykkt öryggisgleraugu og
vinnuhanska við samsetningu.
• Gætið þess að vinnusvæðið sé hreint og vel upplýst.
• Haldið fjarri börnum, gæludýrum og nærstöddum við samsetningu. Truanir geta
valdið því að áhöldum sé ranglega beitt og valdið slysum.
• Sýnið aðgát og veitið verkinu athygli. Notið heilbrigða skynsemi við notkun vélk
núinna áhalda. Ekki setja saman ef þú ert þreytt(ur) eða undir áhrifum lyfja,
áfengis eða fíkniefna. Andartaks athyglisbrestur á meðan vélknúin tæki eru notuð
getur leitt til alvarlegra meiðsla, rafmagnslosts eða eldsvoða.
• Þyngdarmörk og önnur geta vörunnar á aðeins við um rétt samsetta og að fullu
samsetta vöru. Notið ekki ef samsetningu er ekki lokið eða ef samsetning er
röng.
Sýnið varúð
• Þessi vara er ekki leikfang. Ekki leyfa börnum að leika sér með vöruna eða nærri
henni og geymið þar sem þau ná og sjá ekki til.
• Notið sætið og aukahluti eins og ætlast er til skv. þessum leiðbeiningum. Takið
mið af vinnuaðstæðum og verkum sem sinna skal. Ef sætið er notað á annan
hátt en ætlast er til gæti það valdið hættu.
• Skoðið fyrir hverja notkun. Ekki nota ef hlutar eru lausir eða skemmdir.
• Farið ekki yr burðargetu sem er 204 kg.
ATHUGIÐ: Aðgætið breytilega hleðslu! Skyndilegar breytingar á hleðslu geta
valdið yrþyngd sem leitt getur til þess að varan skemmist.
• Viðhaldið merkingum vörunnar og áletrunum. Þær hafa áríðandi
öryggisupplýsingar.
• Komið ónotuðum áhöldum fyrir. Þessa vöru skal geyma á þurrum stað til að
koma í veg fyrir ryð.
• Viðvaranir og leiðbeiningar sem koma fyrir í þessari leiðbeiningarhandbók ná
ekki yr allar mögulegar aðstæður eða tilvik sem upp geta komið. Notandi
verður að skilja að heilbrigð skynsemi og varúð fylgir ekki með vörunni og er e
itthvað sem notandinn verður að leggja til.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
52777_SideKick.indd 35 12/16/15 9:43 AM