EasyManua.ls Logo

Outdoorchef COMPACTCHEF 480 G - Page 101

Outdoorchef COMPACTCHEF 480 G
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
OUTDOORCHEF.COM
101
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR KÚLUGASGRILL
1. Færið trektina í stöðuna sem á að nota (venjulegu stöðuna eða eldfjallsstöðuna).
ATHUGIÐ: Notið eingöngu hitaþolna hanska til að breyta stöðu trektarinnar meðan grillið er í notkun.
ATHUGIÐ: Þegar grillað er og eldað í eldfjallsstöðunni á stillingunni skal hafa lokið opið. Aðeins í stillingunni – er einnig
hægt að hafa lokið á þegar grillað er í eldfjallsstöðunni.
2. Veljið viðeigandi aukabúnað ef þörf krefur.
3. Hafið grillið lokað og forhitið það í u.þ.b. 10–15 mínútur á stillingu .
4. Setjið matinn á grillgrindina og stillið hitastigið eftir þörfum á bilinu – .
5. Stillið gasstillihnappinn alltaf á eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.
ATHUGIÐ: Hætta er á að brenna sig á heitri feiti í feitibakkanum. Látið feitina kólna alveg áður en feitibakkinn er fjarlægður.
Látið grillið kólna alveg áður en það er fært úr stað eða þrifið.
ÁBENDINGAR
GRILLAÐ Á KÚLUGASGRILLINU
Venjuleg staða
Stærri kjötstykki (t.d. fillet, entrecôte, kótelettur í stykkjum eða heill kjúklingur): Með einstöku trektarkerfinu þarf ekki lengur að snúa stórum
kjötbitum meðan grillað er. Hitinn frá gasbrennaranum stígur upp með innri hliðum grillkúlunnar og dreifist jafnt um hana. Setjið matinn á
forhituðu grillgrindina og setjið lokið á. Gætið þess að hafa alltaf dálítið bil á milli kjötstykkja. Þegar grillað er með lokið á brúnast maturinn jafnt á
öllum hliðum og safinn helst í kjötinu.
Til að tryggja sem bestan árangur þegar grilla á stærri kjötstykki mælum við með því að notaðir séu hitamælar frá okkur, t.d. OUTDOORCHEF
GOURMET CHECK PRO – kjarnhitamælir sem skilar fullkomnum niðurstöðum og er einfalt að stjórna með OUTDOORCHEF -smáforritinu.
Í venjulegu stöðunni er einnig tilvalið að baka. Til dæmis er hægt að gleðja fjölskyldu og vini með heimagerðri pítsu af OUTDOORCHEF
-pítsusteininum sem passar fullkomlega í kúluna. Hitið pítsusteininn fyrst í 20 mínútur á hæstu stillingu áður en pítsan er sett á. Útkoman verður
stökkbakaður pítsubotn alveg eins og á ítölskum veitingastað.
OUTDOORCHEF -grillið verður enn betra með réttum fylgibúnaði. Hvort sem ætlunin er að grilla, elda eða baka: Fáið útrás fyrir tilraunastarfsemi
og sköpunargleði.
Frekari upplýsingar um mikið úrval fylgihluta og smáforritið okkar má finna á: WWW.OUTDOORCHEF.COM
Eldfjallsstaðan
Hentar fullkomlega við notkun á OUTDOORCHEF -fylgihlutum þar sem þörf er á miklum hita neðan frá, til dæmis fyrir fylgihluti eins og
OUTDOORCHEF -steypujárnsplötuna eða OUTDOORCHEF wok-grillpönnuna. Þessi staða er einnig tilvalin til djúpsteikingar í wok-grillpönnuni -
fyrir stökkar franskar kartöflur, kjúklinganagga, fisk og franskar og margt fleira.