EasyManua.ls Logo

Outdoorchef COMPACTCHEF 480 G - Page 99

Outdoorchef COMPACTCHEF 480 G
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
OUTDOORCHEF.COM
99
LEIÐBEININGAR VIÐ ÍKVEIKJU0
1. Gangið úr skugga um að allar tengingar milli gasslöngunnar, gasþrýstijafnarans og gaskútsins séu tryggilega festar (fylgið leiðbeiningunum í
kaflanum LEKAPRÓFUN).
ATHUGIÐ: Á MINICHEF 420 G verða hliðarborðin að vera uppi allan tímann á meðan grillað er.
2. Opnið lokið á grillinu. VARÚÐ: Kveikið aldrei í grillinu með lokið á.
3. Skrúfið frá gasinu á gaskútnum.
4 a. Gerðir með einum hringbrennara með sér kveikihnappi:
Ýtið á gasstillihnappinn og snúið honum rangsælis á stillingu .
Ýtið á svarta kveikihnappinn og haldið honum inni þar til neisti kviknar og gasið logar. (Mynd 1C)
4 b. Gerðir með einum hringbrennura án sér kveikihnapps:
Ýtið á gasstillihnapp hringbrennara og snúið honum rangsælis á stillinguna .
Haldið gasstillihnappinum inni þar til neisti kviknar og gasið logar. (Mynd 1G)
4 c. Gerðir með tveimur hringbrennurum og sér kveikihnappi:
Ýtið á gasstillihnapp stóra hringbrennarans og snúið honum rangsælis á stillingu . Ýtið á svarta kveikihnappinn og haldið honum
inni þar til neisti kviknar og gasið logar.
Eða ýtið á gasstillihnapp litla hringbrennarans (hnappur vinstra megin) og snúið honum rangsælis á stillinguna . Ýtið á svarta
kveikihnappinn og haldið honum inni þar til neisti kviknar og gasið logar. (Mynd 1D)
4 d. Gerðir með tveimur hringbrennurum án sér kveikihnapps:
Ýtið á gasstillihnapp stóra hringbrennarans og snúið honum rangsælis á stillinguna . Haldið gasstillihnappinum inni þar til neisti
kviknar og gasið logar. (Mynd 1E)
Eða ýtið á gasstillihnapp litla hringbrennarans (hnappur vinstra megin) og snúið honum rangsælis á stillinguna . Haldið
gasstillihnappinum inni þar til neisti kviknar og gasið logar.
5. Ef ekki kviknar á gasinu innan þriggja sekúndna skal stilla gasstillihnappinn á . Bíðið í tvær mínútur meðan gasið sem tókst ekki að brenna
gufar upp. Endurtakið svo skref 4.
6. Ef ekki er hægt að kveikja á grillinu eftir þrjár tilraunir skal athuga orsakir þess (eins og lýst er í kaflanum GERT VIÐ BILUN).
LEIÐBEININGAR VIÐ ÍKVEIKJU Á CITY 420 G
1. Gangið úr skugga um að allar tengingar milli gasslöngunnar, gasþrýstijafnarans og gaskútsins séu tryggilega festar. (Fylgið leiðbeiningum í
kaflanum LEKAPRÓFUN).
2. Opnið lokið á grillinu. VARÚÐ: Kveikið aldrei í grillinu með lokið á.
3. Skrúfið frá gasinu á gaskútnum.
4. Ýtið á gasstillihnappinn og snúið honum rangsælis á stillinguna . Ýtið á svarta kveikihnappinn nokkrum sinnum þar til kviknar í
gasinu. (Mynd 1F)
5. Ef ekki kviknar á gasinu innan þriggja sekúndna skal stilla gasstillihnappinn á . Bíðið í tvær mínútur meðan gasið sem tókst ekki að brenna
gufar upp. Endurtakið svo skref 4.
6. Ef ekki er hægt að kveikja á grillinu eftir þrjár tilraunir skal athuga orsakir þess (eins og lýst er í kaflanum GERT VIÐ BILUN).

Other manuals for Outdoorchef COMPACTCHEF 480 G

Related product manuals