EasyManua.ls Logo

ResMed Narval CC - Page 33

ResMed Narval CC
76 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
ÍSLENSKA 33
ÍSLENSKA
Inngangur
Takk fyrir að velja Narval CAD/CAM (tölvustudd hönnun og framleiðsla) tæki fyrir munnhol. Í skjali
þessu eru leiðbeiningar fyrir sjúklinga sem nota Narval CC
tæki. Vinsamlega lesið vandlega allar
leiðbeiningarnar áður en tækið er notað og ef spurningar vakna skal hafa samband við tannlækni.
Fyrirkomulag
Narval CC tækið þitt heldur neðri kjálka (mandible) í framstöðu, sem þá dregur tungurætur fram á
við og víkkar öndunarveg í koki bak við tunguna. Tækið er gert til að hjálpa til við að opna rýmið aftan
við tunguna og auka spennu á slökum mjúkvefjum, draga úr hrotum, fækka öndunarstoppum og
grunnöndunartilvikum sem truflað geta lífeðlisfræðilegar svefnlotur.
Ábendingar
Narval CC tækið er sérsniðið til að ýta fram
neðri kjálka (MAD), fæst gegn tilvísun læknis og
er ætlað til meðferðar hjá fullorðnum með:
Vægan til í meðallagi alvarlegan kæfisvefn
(OSA)
Kæfisvefn á háu stigi ef um er að ræða
stöðugan skort á loftþrýstingi (CPAP), ekki
farið að fyrirmælum eða höfnun (annars stigs
meðferð)
• Hrotur
Frábendingar
Narval CC tækið er með frábendingar gagnvart
sjúklingum sem:
Almennar frábendingar
• Eru með svefnraskanir
Eru með alvarlegar öndunarraskanir (aðrar en
kæfisvefn)
• Eru yngri en 18 ára
Frábendingar vegna tanna
Eru með lausar tennur eða langt genginn
tannsjúkdóm
Eru með algjörlega tannlausan neðri góm
nema til staðar séu gervitennur (t.d. festar
með tannplanta)
Eru með algjörlega tannlausan efri góm nema
til staðar sé efri heill gervigómur
Eru með stuttar tennur og/eða ónógan
undirskurð til að halda tækinu
Heilbrigður eins-
taklingur
(opinn öndunarvegur)
Ástand öndunarvega
Sjúklingur án meðferðar
við kæfisvefni (OSA)
(öndunarvegur lokaður - öndunarstöðvun)
Sjúklingur meðhönd-
laður með Narval CC
tæki
Sjúklingur sem hrýtur
án meðferðar
(öndunarvegur að hluta lokaður)

Other manuals for ResMed Narval CC