EasyManua.ls Logo

VITRA Eames - Page 270

VITRA Eames
480 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
FM-ÚTVARPSSTILLING
NOTKUN FM-ÚTVARPS (FM OPERATION)
Gakktu úr skugga um að loftnet útvarpsins sé dregið út áður en það er notað í FM-stillingu.
Til að fara í FM-STILLINGU skaltu ýta á hnappinn „MODE“ (stilling) þangað til
upphafsskjár FM-STILLINGAR birtist.
Ef þetta er í fyrsta skipti sem útvarpið er notað í FM-STILLINGU mun það byrja í upphafi
tíðnisviðsins (87,50 MHz), annars mun útvarpið sjálfkrafa fara á þá stöð sem síðast var
hlustað á.
Ef ýtt er á CONTROL-skífuna mun útvarpið hefja skönnun til að finna næstu tiltæku stöð.
Eames Radio mun sjálfkrafa hætta skönnun þegar stöð finnst.
Til að fínstilla skaltu snúa CONTROL-skífunni til að breyta tíðninni smám saman.
Þegar stillt er á FM-stöð með mikinn sendistyrk sem sendir út RDS-merki mun útvarpið birta
nafn stöðvarinnar og aðrar textaupplýsingar á skjánum.
FORSTILLING UPPÁHALDSSTÖÐVA (FAVOURITE STATION PRESETS)
Í Eames Radio getur þú geymt forstilltar 10 uppáhaldsstöðvar sem þú getur nálgast með
hnappinum „PRESETS“ (forstillingar) framan á útvarpinu.
Til að vista stöðina sem þú ert að hlusta á sem forstillingu skaltu ýta á hnappinn „PRESETS“
og halda honum inni og nota svo CONTROL-skífuna til að finna ónotað (tómt) pláss. Ýttu
nú á skífuna til að geyma stöðina.
Til að hlusta á vistaða uppáhaldsstöð skaltu ýta á hnappinn „PRESETS“, nota því næst
CONTROL-skífuna til að fletta í gegnum möguleikana og velja stöð með því að ýta á
skífuna.
Ef þú vilt breyta tiltekinni forstillingu síðar meir skaltu endurtaka ofangreinda ferlið til að vista
stöð. Skrifað verður sjálfkrafa yfir fyrri forstillingu.
87.50MHz
[No RadioText]
99.50MHz
BBC Radio 1
FM
Preset Recall
<1: (Empty) >
Preset Recall
<1: BBC R1 >
10
IS