EasyManua.ls Logo

3M Peltor LiteCom Plus MT7H7A4410-EU - Page 62

3M Peltor LiteCom Plus MT7H7A4410-EU
170 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
56
57
IS
3M™ PELTOR™ LiteCom Plus
Heyrnarhlífar með innbyggðu fjarskiptaviðtæki, styrkstýringu fyrir umhvershlustun og möguleika á tengingu ytri búnaðar.
Lestu leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun og geymdu þær til þess að geta leitað í þær síðar.
1. ÍHLUTIR
1.1 Höfuðspöng (mynd A)
(A:1) Höfuðspöng
(A:2) Höfuðspangarfóðring (PVC þynna)
(A:3) Höfuðspangarvír (ryðfrítt stál)
(A:4) Tveggja punkta festing (POM)
(A:5) Eyrnapúði (PVC þynna og PUR-frauð)
(A:6) Þéttipúðar (PUR-frauð)
(A:7) Skál
(A:8) Hljóðnemi með styrkstillingu fyrir umhvershlustun
(A:9) Talnemi (electret-hljóðnemi)
(A:10) ON/OFF/MODE hamur
(A:11) +
(A:12) -
(A:13) Loftnet
(A:14) Innstunga fyrir talnema (J22)
(A:15) PTT-hnappur (Push-To-Talk – Ýta og tala) fyrir innbyggt fjarskiptaviðtæki
(A:16) PTT aukatengi. (Push-To-Talk – Ýta og tala) hnappur fyrir tengdan ytri búnað (A:17)
(A:17) Ytri tengin inn/út (t.d. fyrir ytra fjarskiptaviðtæki, ytri síma)
(A:18) Lithium-ion rafhlaða (hleðslurafhlaða)
1.2 Hjálmfestingar (mynd B)
(B:1) Skálarhaldari (ryðfrítt stál)
1.3 Hálsspöng (mynd C)
(C:1) Hálsspangarvír (ryðfrítt stál)
(C:2) Hálsspangarhlíf (POX)
2. AÐ SETJA UPP OG STILLA
Athugasemd! Ýta þarf hárinu kringum eyrun frá svo þéttihringirnir (A:5) falli þétt að.
Gleraugnaspangir þurfa að vera eins mjóar og hægt er og falla þétt að höfðinu til að lágmarka hljóðleka.
2.1 Höfuðspöng (mynd D)
(D:1) Renndu skálunum út (A:7). Hallaðu efri hluta heyrnartólanna út á við til þess að tryggja að vírarnir séu fyrir utan
höfuðspangarvírana (A:3).
(D:2) Stilltu hæð skálanna með því að draga þær upp eða niður á meðan höfuðspönginni er haldið niðri.
(D:3) Höfuðspöngin ætti að liggja þvert yr hvirlinn.
2.2 Hjálmfestingar (mynd E)
(E:1) Komdu hjálmfestingunum fyrir í festiraufunum á hjálminum og smelltu þeim á sinn stað.
(E:2) Vinnustaða. Þegar stilla á heyrnartólin úr loftræstistöðu í vinnustöðu er stálvírunum þrýst inn á við þar til smellur
heyrist báðum megin. Gættu þess að skálar og höfuðspangarvírar þrýsti ekki á hjálmbrúnina í vinnustöðu því það getur
valdið hljóðleka.
(E:3) Loftræstistaða. Forðastu að leggja skálarnar að hjálminum því það hindrar loftræstingu (E:4).
3. NOTKUN/AÐGERÐIR
3.1 Að setja í rafhlöður
Settu hleðslurafhlöðuna (ACK081) í rafhlöðuhólð. Þrýstu klemmunni niður.
Raddskilaboð gefa til kynna að rafhlaða sé að tæmast: „low battery“ (rafhlaða að tæmast) endurtekið á mm mínútna fresti.
Sé ekki skipt um rafhlöður heyrast að lokum þessi skilaboð: „battery empty“ (tóm rafhlaða). Tækið slekkur þá sjálfkrafa á sér.
Athugasemd! Notaðu eftirfarandi rafhlöður í þetta tæki: 3M Peltor ACK081 hlaðið með snúru 3M Peltor AL2AI tengdri við
3M Peltor FR08 (agjafa). Athugasemd! Afköst tækisins geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.

Table of Contents

Related product manuals