EasyManua.ls Logo

3M Peltor LiteCom Plus MT7H7A4410-EU - Page 63

3M Peltor LiteCom Plus MT7H7A4410-EU
170 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
56
57
IS
3.2 Að hlaða rafhlöðurnar á ný
Settu bitlaust verkfæri undir klemmubrúnina og ýttu út og upp á við. Fjarlægðu rafhlöðuna og leggðu hana til hliðar eða
láttu hana liggja á sínum stað og hleddu hana í heyrnarhlífunum.
3.3 Að kveikja og slökkva á heyrnartólunum
Kveiktu og slökktu á tækinu með því að þrýsta á On/Off/Mode hnappinn (A:10) og halda honum niðri í tvær sekúndur.
Raddskilaboð staðfesta að kveikt hefur verið eða slökkt á tækinu. Hnappurinn fer að blikka þegar kveikt er á tækinu.
Síðasta stilling vistast alltaf þegar slökkt er á heyrnartólunum.
Athugasemd! í uppsetningarvalmynd er hægt að breyta þeirri stillingu að tækið slökkvi sjálfkrafa á sér eftir tvo klukkutíma
(verksmiðjustilling).
Raddskilaboð gefa til kynna að tækið sé að slökkva sjálfvirkt á sér: „automatic power off“ (slekkur á sér sjálfvirkt) og síðan
fylgir röð stuttra tónmerkja í 10 sekúndur áður en tækið slekkur á sér.
3.4 Að skruna gegnum valmyndir
Þrýstu snöggt á On/Off/Mode hnappinn (A:10) til þess að etta gegnum valmyndina. Raddskilaboð staðfesta hvert skref.
3.5 Surround volume (styrkstýrð stilling fyrir umhvershljóð)
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að stilla styrkinn. Raddskilaboð staðfesta allar breytingar. Þú getur
valið á milli 6 styrkstillinga en 6. stig leyr að hámarki 82dB.
Slökktu á þessari virkni með því þrýsta á - hnappinn (A:12) í tvær sekúndur. Þegar slökkt er á þessari virkni, er það
staðfest með raddskilaboðunum „surround volume off“ (slökkt á umhvershljóði). Þrýstu á + hnappinn (A:11) til þess
virkja tækið á ný.
Athugasemd! Þegar slökkt er á þessari aðgerð, heyrir þú engin utanaðkomandi hljóð sem gæti reynst hættulegt.
3.6 Radio volume (hljóðstyrkur í innbyggðu fjarskiptaviðtæki)
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess stilla hljóðstyrkinn. Raddskilaboð staðfesta allar breytingar.
Hægt er að velja á milli 6 styrkstiga. Slökktu á virkninni með því að þrýsta á – hnappinn (A:12) í tvær sekúndur. Þegar slökkt
er á þessari virkni, er það staðfest með raddskilaboðunum „Radio volume off“ (slökkt á viðtækishljóði).
Þrýstu á + hnappinn (A:11) til þess að virkja þetta á ný.
Athugasemd! Engin skilaboð heyrast í talstöð þegar skrúfað hefur verið fyrir hljóðið.
Athugasemd! Þegar slökkt er á hljóðinu, sést engin valmynd viðkomandi því.
3.7 Channel (senditíðni)
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að stilla styrkinn. Raddskilaboð staðfesta allar breytingar. Fjöldi
sendirása í boði ræðst af gerð tækisins. MT7H7*4410-EU = 8 rásir, sjá töu F:1 Tíðni útvarpsrása (PMR). MT7H7*4310-EU
= 69 rásir, sjá töu F:2 Tíðni útvarpsrása (LPD).
3.8 VOX (raddstýrð sending)
VOX getur LiteCom Plus kleift að senda sjálfvirkt þegar hljóð yr ákveðnum styrk berst í hljóðnema. Þannig má senda út
hljóð án þess að þrýsta á PTT-hnappinn (A:15).
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að stilla næmni raddstýrðrar sendingar. Raddskilaboð staðfesta
allar breytingar. Þú getur valið á milli mm styrkstiga eða slökkt á virkninni. Sending er auðveldari þegar styrkurinn er lágur.
Slökktu á virkninni með því að þrýsta á - hnappinn (A:12) í tvær sekúndur. Raddskilaboðin „VOX off“ (engin raddstýrð
sending) staðfesta breytinguna. Nú þarf að nota PTT-hnappinn (A:15) til þess að senda. Þrýstu á + hnappinn (A:11) til þess
að virkja þetta á ný. Annar kostur er að kveikja eða slökkva á raddstýrðri sendingu með því að þrýsta tvisvar snöggt á PTT-
hnappinn. Raddskilaboð staðfesta gildandi VOX-stillingu.
Viðtækið er með aðgerðinni BCLO (Busy Channel Lock Out – upptekin rás læst) sem kemur í veg fyrir VOX-virkni, sé verið
að nota rásina í aðra sendingu. Tónmerki gefur til kynna að rásin sé í notkun fyrir.
Athugasemd! Talneminn (A:9) verður að vera mjög nálægt munni, 1–3 mm, til þess að ræsa VOX-virknina (mynd G). Rödd
notanda heyrist í heyrnartólunum þegar viðtækið sendir út.
3.9 Sub menu (undirvalmynd)
Þar er að nna stillingar sem aðeins þarf að breyta einstaka sinnum. Undirvalmynd er opnuð með því að þrýsta á + hnappinn
(A.11) og - hnappinn (A:12) samtímis í eina sekúndu. Farið er aftur í aðalvalmynd með því þrýsta á + hnappinn (A.11)
og - hnappinn (A:12) samtímis og halda honum niðri eða að bíða í 10 sekúndur án þess að þrýsta á neinn hnapp til þess að
komast sjálfkrafa í aðalvalmynd.

Table of Contents

Related product manuals