EasyManua.ls Logo

3M Peltor LiteCom Plus MT7H7A4410-EU - Page 64

3M Peltor LiteCom Plus MT7H7A4410-EU
170 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
58
59
IS
3.9.1 Squelch (suðdeyng)
Suðdeyng þýðir að komið er í veg fyrir bakgrunnssuð þegar hljóðmerkið inn er stillt undir ákveðnu stigi.
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að stilla styrk suðdeyngar. Raddskilaboð staðfesta allar breytin-
gar. Þú getur valið á milli mm styrkstiga eða slökkt á virkninni. Lágt suðdeyngarstig getur geð kost á meiri drægni.
Slökktu á virkninni með því að þrýsta á - hnappinn (A:12) í tvær sekúndur. Raddskilaboðin „squelch off“ (engin suðdeyng)
staðfesta breytinguna. Þrýstu á + hnappinn (A:11) til þess að virkja tækið á ný.
3.9.2 Sub channel (valkvæð suðdeyng)
Þegar lágtíðnitónn er virkur, er tónn sem ekki heyrist sendur með talinu en tónninn er notaður til þess að „opna“ móttaka-
rann. Þannig geta margir notendur nýtt sér sömu rás án þess að þurfa að hlusta hver á annan. Þessi vara styður CTCSS
(Continous tone coded squelch system – suðdeyngarker með kóðuðum lágtíðnitóni) (taa H) og DCS (Digital Coded
System – Stafrænt kóðað ker) (taa I) en það þýðir að 121 kóði hefur verið úthlutaður tölunum 1–121. Öll fjarskipti á rás
heyrast, sé slökkt á þessari virkni.
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að velja lágtíðnitón. Raddskilaboð staðfesta allar breytingar.
Þú getur valið á milli 121 tóns eða slökkt á virkninni. Slökktu á þessari virkni með því að þrýsta á - hnappinn (A:12) þegar
lágtíðnitónn 1 er valinn eða þrýstu á + (A:11) hnappinn þegar lágtíðnitónn 121 er valinn. Val er staðfest með raddskilaboðu-
num „sub channel off“ (slökkt á lágtíðnihljóði). Þrýstu á + hnappinn (A:11) til þess að virkja tækið á ný.
Athugasemd! Þegar kveikt er á lágtíðnitóninum, er lokað fyrir öll önnur fjarskipti.
Athugasemd! BCLO (Busy Channel Lock Out – upptekin rás læst) hindrar sendingu á upptekinni rás (sjá 3.8 VOX).
3.9.3 Power (á sendingu viðtækis)
Í boði eru tvær styrkstillingar, hátt og lágt. Notaðu lægri stillinguna til þess að hámarka notkunartíma.
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að stilla styrkinn. Raddskilaboð staðfesta allar breytingar.
3.10 Set up menu (uppsetningarvalmynd, stillingavalmynd)
Stillingavalmyndin veitir aðgang að ýtarlegri stillingum fyrir heyrnartólin. Þessi valmynd er opnuð þegar slökkt er á tækinu
með því að þrýsta á PTT aukatengishnappinn (A:16) og On/Off/Mode hnappinn (A:10) samtímis. Þrýst er á On/Off/
Mode hnappinn (A:10) og honum haldið niðri í 2 sekúndur til þess að fara út úr uppsetningarvalmynd og þá slökknar á
heyrnartólunum.
3.10.1 BCLO (Busy channel lockout – upptekin rás læst)
Þessi valmyndarstilling leyr þér að stilla viðbrögð heyrnartólanna þegar þú reynir að senda á upptekinni rás.
Um er ræða tvo kosti: „carrier“ (beri) og „sub channel“ (lágtíðnitónn - kóði) með eða án viðvörunartóns. Ef þú vilt
heyrnartólin bregðist við bera, velurðu kostinn „carrier“. Ef þú vilt heyrnartólin bregðist við lágtíðnitóni, velurðu kostinn
„sub channel“. Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess velja BCLO stillingu. Raddskilaboð staðfesta
allar breytingar.
3.10.2 Max transmission time (hámarks sendingartími)
Þessi aðgerð leyr þér að stilla hámarks sendingartíma. Hægt er að velja tímalengd á bilinu 30 sekúndur til 5 mínútna og
að slökkva. Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til að stilla hámarks sendingartíma. Raddskilaboð staðfesta
allar breytingar.
3.10.3 Automatic power off (sjálfvirkt slökkt á tækinu)
Það slökknar sjálfkrafa á heyrnartólunum, sé engin virkni (ekki þrýst á hnapp eða ef engin VOX-sending á sér stað) í
ákveðinn tíma. Þessa tímalengd er hægt að stilla hérna (hámarkstími er 8 klukkustundir) eða að aftengja virknina. Þrýstu
á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til að stilla eftir hve langan tíma það slökknar sjálfkrafa á heyrnartólunum.
Raddskilaboð staðfesta allar breytingar.
3.10.4 External mode (utanaðkomandi tenging)
Hægt er stilla utanaðkomandi tengingu fyrir búnað af ýmsu tagi sem tengdur er við heyrnartólin. Hægt er skipta á
milli ytri PTT-hams, inntakshams (t.d. FM/AM útvarp), símahams (t.d. farsími, DECT-sími) eða talstöðvarhams (ytra sam-
skiptaviðtæki). Hver um sig hefur sína eigin virkni.
Þrýstu á + hnappinn (A:11) eða - hnappinn (A:12) til þess að velja virkni. Raddskilaboð staðfesta allar breytingar.
Viðvörun! Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið fram yr dagleg hávaðamörk.

Table of Contents

Related product manuals