EasyManua.ls Logo

Alpine PartyPlug Pro - IS Notkunarleiðbeiningar Fyrir Alpine Partyplug Pro

Alpine PartyPlug Pro
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
15
IS Notkunarleiðbeiningar fyrir Alpine PartyPlug
Pro
Viðvörun!
Notið ekki eyrnatappana án þess að setja upp
tónlistarsíuna. Það getur leitt til varanlegs
heyrnarskaða.
Heyrnarhlífunum er ætlað að verja notandann gegn
skaðlegu hávaðastigi. Notandinn skal tryggja að
eyrnatapparnir séu af réttri stærð, stilltir og viðhaldið í
samræmi við þessa notendahandbók. Öll önnur notkun
er ekki í samræmi við fyrirhugaða notkun og því óheimil.
Notið eyrnatappana alltaf í hávaðasömu umhverfi, án
þess að gera hlé á notkuninni. Togið eyrað lítillega upp
á við og notið hina höndina til að setja eyrnatappann í
eyrað, þar til hann situr vel. Ekki setja eyrnatappann of
langt inn í eyrað. Röng stærð, röng notkun eða misbrestur
á að fylgja leiðbeiningum þessarar vöru mun draga úr
virkni suðhreinsunar, auka hættu á heyrnarskaða og hafa
áhrif á endingartíma fjölnota eyrnatappanna. Alpine ber
enga ábyrgð á skaða sem rekja má til rangrar notkunar.
Athugið virkni eyrnatappanna reglulega og geymið
þá í upprunalegum, hreinum umbúðum. Endingartími
vörunnar eru 5ár frá framleiðsludegi (dagsetningin er
skráð á umbúðunum). Tilgreindur endingartími vörunnar
er aðeins ábending og raunverulegur endingartími fer
eftir mörgum ytri þáttum og þáttum sem ekki er hægt að
hafa stjórn á. Því er ekki hægt að ábyrgjast tilgreindan
endingartíma. Þrífið eyrnatappana reglulega með
mildri sápu og volgu vatni. Þurrkið þá eftir hreinsun.
Eyrnatapparnir eru fjölnota og hægt er að nota þá í u.þ.b.
100skipti. Ef heyrnarhlífar eru fjarlægðar skyndilega
eða hratt getur það valdið skaða á hljóðhimnunni. Þegar
varan er notuð samkvæmt leiðbeiningum er hávaðastigið
sem eyrað nemur áætlað út frá mismuninum á milli
A-vegins hljóðstigs í umhverfinu og lægri og hærri
suðhreinsunargilda (NRR).
Varúð: Þegar um er að ræða umhverfi þar sem aðallega
eru lágtíðnihljóð og mismunurinn á milli mældra
C-veginna og A-veginna hljóðstiga (dBCdBA) er meiri en
3dB, er notanda vísað á meðfylgjandi graf fyrir breytileika
suðhreinsunar með hljóðrófi, þar sem hægt er að ákvarða
varnarstig vörunnar.
Þessi vara getur orðið fyrir skemmdum af völdum
tiltekinna íðefna. Leita skal frekari upplýsinga hjá
framleiðanda. Þótt hægt sé að mæla með heyrnarhlífum
til varnar gegn skaðlegum áhrifum af hávaða sem stafar
frá höggum eða sprengingum byggja suðhreinsunargildi
(NRR) á deyfingu á samfelldu suði sem leiðir til þess að
þau eru hugsanlega ekki nákvæmir vísar fyrir vörn sem
hægt er að ná gegn slíkum hávaða, til dæmis frá skothríð.
Alpine lýsir því hér með yfir að þessi vara samræmist
reglugerð um persónuhlífar (ESB) 2016/425.
ESB-samræmisyfirlýsinguna má finna í heild sinni á
eftirfarandi vefslóð: www.alpine.eu/doc
M MS L
Finndu þína stærð Endi eyrnatappa
Tónlistarsía
Tónlistarsía sett upp / fjarlægð
Variability of Noise Reduction as a Function of Noise Spectra
50
40
30
20
10
0
-2 0 2 4 6 8 10 12 14
16
Spectral Balance B = L
C
-L
A
(dB)
Estimated Noise Reduction (dB)
80th Percentile Noise Reductions
20th Percentile Noise Reductions
PartyPlug Pro Natural

Related product manuals