234 235
! Mikilvægar upplýsingar
• Barnabílstóllinn MÁ EKKI vera sett í framsæti EF
LOFTPÚÐAR ERU VIRKIR eða í sæti með beltisloftpúða.
• Listinn yfir bifreiðar fyrir þennan bílstól er leiðarvísir sem
sýnir hvar hægt er að setja bílstól í þína bifreið. Þú verður þó alltaf að
athuga í handbók bifreiðarinnar þinnar hvort barnabílstóll af þessari
tegund megi vera notuð í bifreiðinni. Handbók bifreiðarinnar hefur
forgang og alltaf verður að fara eftir henni.
• Þessi bílstóll verður að setja þannig að barnið snúi aftur og með 3ja
punkta öryggisbelti, í samræmi við UN/ECE reglugerð nr. 16 eða aðra
jafngilda staðla.
• Alltaf á að nota gólfstuðning. Ýta skal stönginni vel niður í gólf
ökutækisins og ganga úr skugga um að vísirinn á henni bendi á grænt.
• Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
• Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta þess að
þau séu ekki snúin.
• Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur
hægt að mynda brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal ganga úr
skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu.
• Axlapúðarnir innihalda segla. Seglar geta haft áhrif á rafmagnsbúnað, t.d.
gangráða eða önnur lækningatæki.
• Verjið barnið fyrir sól.
• Klæðið barnið ávallt í þunnt lag af fötum til að forðast beina snertingu á
milli beislisins og húðar. Forðist þykkan fatnað því það kemur í veg fyrir
að hægt sé að strekkja beltin að fullu.
• Við mælum með því að nota barnainnleggið eingöngu í mest hallandi
stöðu þar til barnið hefur náð 87 cm hæð.
• Taktu barnainnleggið úr þegar barnið er orðið hærra en 87 cm.
• Þú verður að hætta að nota þennan bílstól og skipta yfir í næstu stærð
þegar EITT af eftirfarandi atriðum er uppfyllt: 1) Barnið er stærra en 125
cm; 2) Barnið er þyngra en 36 kg í fötum; 3) Axlahæð barnsins fer yfir
hæstu stöðu axlabeltanna; 4) Efsti hluti eyrnanna er fyrir ofan hæsta
punkt höfuðpúðans í hæstu stöðu.
• Skiptu um bílstólinn ef hann var í árekstri þar sem hraðinn var 10 km/
klst. eða meiri og ef grunur leikur á að bílstóllinn hafi skemmst af
einhverri ástæðu. Þótt bílstóllinn gæti virst óskemmdur er mögulegt að
hann geti ekki verndað barnið þitt eins vel og hann var hannaður fyrir, ef
! Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR en þú festir
stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni þínu í hættu.
Þakka þér fyrir að velja BeSafe Stretch B annað slys á sér stað.
• Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á hann
eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
• EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við hann.
Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru notaðir eða
einhver aukabúnaður.
• Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
• Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr stólnum í
neyðartilfellum.
• Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað bæði
börn og fullorðna illa.
• Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins endurnýja
með upprunalegu BeSafe áklæði.
• Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
• Þegar áklæðið er þvegið skal fylgja þvottaleiðbeiningum innan á
áklæðinu.
• BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir né seldir.
• GEYMDU þessa handbók til síðari nota. Geymdu það í vasanum fyrir
notandahandbókina neðst á framstoðinni.
• EKKI nota stólinn lengur en 15 ár því efnið í honum breytist með aldrinum.
• EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks
heldur aðeins til nota í bíl.
• Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum þar
sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að (BeSafe)
hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg fyrir skemmdir
af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og viðarklædda fleti.
• Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla hjá VÍS.
Höfuðpúði
Barnainnlegg
Framstoð
Framstoðshandfang
Vasi fyrir notandahandbók
SIP+ (Hliðarhöggvernd)
Beltaleiðari (2x)
Gólfstuðningur
Stilling fyrir gólfstuðning
Stöðuvísir fyrir gólfstuðning
Axlarpúðar (2x)
Axlaólar (2x)
(1a)
(1b)
(1c)
(1d)
(1e)
(1f)
(1g)
(1h)
(1i)
(1j)
(1k)
(1l)
Íhlutir