240 241
2. Opnið beltissylgjuna.
3. Haltu beltunum frá með því að setja axlapúðana á seglana á báðum
hliðunum á bílstólsskelinni. (15)
4. Settu barnið í bílstólinn og stilltu axlabeltin og höfuðpúðann ef þess þarf -
sjá hlutann „Stillingar eftir vexti barnsins”.
5. Settu axlabeltin yfir axlir barnsins og lokaðu sylgjunni: SMELLTU! (15)
6. Togaðu miðjustillingarólina beint frá sætinu til að strekkja á beislinu.
Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur hægt
að mynda lárétt brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal ganga úr
skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu. (15)
Stillingar eftir vexti barnsins
Hæð axlabelta/höfuðpúða
• Hægt er að stilla hæð axlabeltanna og höfuðpúðans með því að toga
handfang höfuðpúðans upp aftan á höfuðpúðanum og færa hann upp
eða niður. Til að þetta sé hægt verður beltissylgjan að vera opin og beltin
þurfa að vera toguð út. (16)
• Til að finna rétta hæð fyrir barnið skaltu færa höfuðpúðann alla leið upp,
setja barnið í bílstólinn og færa síðan höfuðpúðann niður þar til hann situr
á öxlum barnsins.
• Mikilvægt fyrir notkun í framsæti: hafðu alltaf að minnsta kosti 5 cm bil
á milli bílrúðunnar og efsta hluta höfuðs barnsins eða höfuðpúða, hvort
sem er hærra. Ef ekki er hægt að hafa höfuðpúðann hátt uppi í framsæti
bílsins þarftu að færa bílstólinn í aftursætið í staðinn.
Bílstólnum hallað aftur
• Hægt er að stilla hallann á bílstólnum eftir því sem er þægilegast fyrir
barnið. Þetta er gert með því að nota handfangið undir bílstólsskelinni.
(17)
Fótarými
• Þú getur ákveðið hversu mikið fótarými þú vilt hafa hjá bílstólnum
með því að stilla stöðuna á framstoðinni. Þetta verður að gera áður en
bílstóllinn er settur upp. Sjá hlutann „Barnabílstóllinn undirbúinn fyrir
uppsetningu“.
Púðainnlegg
• Fjarlægðu neðstu sessuna þegar barnið hefur náð 2ja ára aldri. (18)
• Fjarlægðu bakpúðann þegar barnið hefur náð 2ja ára aldri eða fyrr ef
barnið virðist orðið of stórt fyrir hann.
Ábyrgð
MIKILVÆGT: Áður en bílstólnum er fleygt við lok
endingartímans
• Allar BeSafe vörur eru hannaðar, framleiddar og prófaðar af kostgæfni
bæði af framleiðanda og óháðum eftirlitsaðilum. Ef stóllinn uppfyllir ekki
kröfur vinsamlegast skilið honum til VÍS.
• Ef lagfæra þarf stólinn sem þú leigir, hafðu þá samband við barnabílstóla
VÍS í síma 560-5365 eða komdu við á næstu þjónustuskrifstofu VÍS. Ekki
reyna að lagfæra stólinn upp á eigin spýtur.
• Stól sem lent hefur í umferðarslysi skal skila strax til VÍS og fá annan í
staðinn
• Þú getur hjálpað við að koma í veg fyrir mögulega neikvæð áhrif á
umhverfið og heilbrigði fólks vegna rangrar meðhöndlunar sorps með því
að tryggja að vörunni, rafhlöðum og rafmagnshlutum sé fargað á réttan
hátt.
• Hafðu samband við yfirvöld á staðnum til að fá nánari upplýsingar um
næstu endurvinnslustöð.
• EKKI MÁ setja stólinn í framsæti MEÐ VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
• Bílstóllinn MÁ EKKI vera settur upp þar sem öryggisbeltið er
með loftpúða í beltinu sem ekki er hægt að slökkva á.
• Ávallt verður að nota gólfstuðninginn. Gættu þess að
gólfstuðningnum sé ýtt alveg niður og að hann snerti gólf bílsins að
fullu.
• Gættu þess að öryggisbeltið sé strekkt, læsingin lokuð og strekkt og að
báðar neðri festiólarnar séu tengdar við bílinn og strekktar.
! Aðvörun: Möguleg mistök
• Leggið á minnið hvernig áklæðið er tekið af til að geta sett það aftur eins
á.
• Hægt er að taka áklæðið af höfuðpúðanum.
• Nánari upplýsingar má finna á www.besafe.com
• Þegar áklæðið er þvegið skal fylgja þvottaleiðbeiningum innan á
áklæðinu.
Skipt um áklæði