Heildarmál ¹
H1 mm 819
W1 mm 596
D1 mm 547
¹ hæð, breidd og dýpt heimilistækisins án
handfangs
Svæði sem þarf til notkunar ²
H2 mm 820
W2 mm 596
D2 mm 550
² hæð, breidd og dýpt heimilistækisins ásamt
handfangi, auk rýmisins sem þarf til að
tryggja rétt loftflæði fyrir kæliloft
Heildarsvæði sem þarf til notkunar ³
H2 mm 820
W3 mm 777
D3 mm 1120
³ hæð, breidd og dýpt heimilistækisins ásamt
handfangi, auk rýmisins sem þarf til að
tryggja rétt loftflæði fyrir kæliloft, auk
svæðisins sem nauðsynlegt er svo að hurðin
geti opnast við lágmarkshorn sem
nauðsynlegt er til að fjarlægja allan innri
búnað
3.2 Staðsetning
Til að tryggja rétta virkni heimilistækisins, ætti
ekki að setja það upp á stað þar sem
heimilistækið verður fyrir beinu sólarljósi. Ekki
setja heimilistækið upp nálægt hitagjöfum
(ofnum) eða eldavélum, bökunarofnum eða
helluborðum, nema annað sé tekið fram í
leiðbeiningum um uppsetningu.
Gakktu úr skugga um að loftflæði sé gott
aftan við skápinn.
Tækið á að setja upp á þurrum, vel
loftræstum stað innandyra.
Þetta tæki er ætlað til notkunar við
umhverfishita á bilinu 10°C til 43°C.
Eingöngu er hægt að ábyrgjast rétta
virkni heimilistækisins sé það notað á
þessu hitabili.
Ef þú hefur einhverjar efasemdir varðandi
uppsetningu heimilistækisins, skaltu
vinsamlegast ráðfæra þig við seljanda,
þjónustuverið okkar eða næstu
viðurkenndu þjónustumiðstöð.
Það verður að vera hægt að taka
heimilistækið úr sambandi við rafmagn.
Innstungan verður því að vera
aðgengileg eftir uppsetningu.
3.3 Rafmagnstenging
• Áður en stungið er í samband, þarf að
ganga úr skugga um að sú spenna og
tíðni sem sýnd eru á merkiplötunna
samræmist heimilisrafmagninu.
• Heimilistækið verður að vera jarðtengt. Kló
rafmangssnúrunnar er með snertu sem er
ætluð til þess. Ef innstungan á heimilinu er
ekki jarðtengd, þarf að jarðtengja
heimilistækið í aðskilda jörð til að uppfylla
núgildandi reglugerðir. Hafið samband við
fagmenntaðan rafvirkja.
• Framleiðandi hafnar allri ábyrgð ef
ofangreindum öryggisráðstöfunum er ekki
fylgt.
3.4 Viðrunarkröfur
VARÚÐ!
Heimilistækið verður að setja upp
samkvæmt uppsetningarleiðbeiningum
svo hægt sé að tryggja nægilegt loftflæði.
3.5 Viðsnúningur hurðar
Vinsamlegast skoðaðu sérstakt skjal með
leiðbeiningum um uppsetningu og viðsnúning
hurðar.
24 ÍSLENSKA