EasyManua.ls Logo

Emmaljunga NXT 2in1 - Page 255

Emmaljunga NXT 2in1
288 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
255
NXT 2in1 v1.0
Mikilvægar upplýsingar
VIÐVÖRUN
Ef einhver hluti þessa leiðarvísis er óljós eða þarfnast frekari skýringa skal hafa sam-
band við viðurkenndan söluaðila Emmaljunga sem veitir þá frekari aðstoð.
Ekki má breyta þessari vöru með neinum hætti þar sem það getur stefnt öryggi
barnsins í hættu. Framleiðandinn ber EKKI ábyrgð á breytingum sem gerðar eru á
vörunni.
Ekki má setja hluti á skerminn. Notið vagninn aldrei án skermsins.
Ekki má aka með önnur börn eða poka á þessari kerru.
Vagninn er eingöngu ætlaður til að ytja barnið á milli staða. Alls ekki má nota vag-
ninn sem rúm fyrir barnið.
Ekki má standa eða sitja á fótaskemlinum. Aðeins má nota fótaskemilinn sem stoð
fyrir fótleggi og fætur eins (1) barns. Önnur notkun getur haft alvarleg slys í för með
sér. Hámarksþyngd fyrir fótaskemilinn er 3 kg.
Öll þyngd sem er sett á vagninn (t.d. á handfangið, bakið eða á hliðarnar) hefur áhrif
á stöðugleika hans. Notið ekki fylgihluti sem framleiðandi viðurkennir ekki.
Ekki má bæta dýnum í vagninn. Notið eingöngu upprunalegu Emmaljunga-dýnuna
sem fylgir með vörunni.
Hlutir í innkaupakörfunni mega ekki standa út fyrir hliðarnar þþá geta þeir ækst í
hjólunum.
EKKI má nota kerrustykkið eða vagnstykkið sem bílstól.
Ef bílstólar eru notaðir á grindinni koma þeir ekki í staðinn fyrir burðarrúm eða rúm.
Ef barnið þarf að sofa skal leggja það á viðeigandi stað eins og burðarrúm eða rúm.
Aldrei skal draga vagninn/kerruna með snúningshjólin að framan fyrir aftan sig.
Vagninn/kerran getur snúist af sjálfu sér, sem getur stefnt öryggi í hættu ef ekki er
sýnd aðgát.
Alls ekki má fara með vagninn upp eða niður tröppur. Notið alltaf lyftur til að fara á
milli hæða. Ef ekki verður hjá því komist að fara upp eða niður stiga skal gæta þess
að taka barnið úr vagninum og sjá til þess að ekkert barn sé í vagninum eða nálægt
honum á meðan.
Alls ekki má fara með vagninn í rúllustiga.
Ekki má nota vöruna í miklum vindi eða þrumuveðri.
Athugið að á lestar- eða neðanjarðarlestarstöðvum geta átt sér stað miklar og skyn-
dilegar breytingar á loftþrýstingi (vegna vinds eða sogs). Látið vagninn aldrei standa
nálægt lestarteinum nema að hafa báðar hendur á handfanginu þar sem bremsan
ein og sér nægir hugsanlega ekki til að halda vagninum á sínum stað.
Farið ekki yr lestarteina með barnið í vagninum. Hætta er á að hjólin festist!
Við notkun í almenningssamgöngum (strætisvögnum, lestum o.s.frv.) nægir ekki
að nota eingöngu bremsuna á vagninum. Vagninn getur orðið fyrir álagi (við skyn-
dilega hemlun, beygjur og ójöfnur á vegi, hraðaaukningu o.s.frv.) sem hann hefur
ekki verið prófaður fyrir samkvæmt gildandi staðli EN1888. Fylgið í hvívetna þeim
tilmælum og leiðbeiningum um örugga festingu barnavagna sem rekstraraðilum í
almenningssamgöngum er skylt að láta í té.
Ekki skal nota þessa vöru sem lækningatæki. Varan er hönnuð og smíðuð í samræmi
við staðalinn EN1888. Ef barnið hefur sérstakar læknisfræðilegar þarr í tengslum
við utning skal ráðfæra sig við lækni.
IS

Table of Contents

Related product manuals