EasyManua.ls Logo

Hallde RG-400 - Page 39

Hallde RG-400
43 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
hjarafestingum vélarinnar (2:G).
VAL Á MÖTUNARBÚNAÐI
Sjálfmatarinn (1:A) er einkum notaður til að
skera kartöflur, lauk, þurrt brauð osfrv.
Pípumatarinn (1:B) er einkum notaður til að
skera gúrku, blaðlauk, papriku osfrv.
Hinn handknúni (1:C) og loftknúni (1:D)
grænmetismatari er einkum notaður til að
skera hvítkál, salat, ost, gulrætur osfrv.
UPPSETNING OG LOSUN
SJÁLFMATARA (7:A)
Ýtið inn stöðvunarhnappnum (2:C).
Við uppsetningu, útbúið skurðarhólkinn að
innanverðu með tveimur stýrirásum.
Leggið sjálfmatarann á skurðarhólkinn
miðjan þannig að öxullinn (7:B) falli inn í
pípu á hólkinum (7:C).
Þrýstið sjálfmataranum niður og snúið
lássnerlinum (7:D) rangsælis.
Við losun, snúið lássnerlinum (7:D) réttsælis
og fjarlægið sjálfmatarann.
UPPSETNING OG LOSUN
PÍPUMATARA
Ýtið inn stöðvunarhnappnum (2:C).
Við uppsetningu, útbúið skurðarhólkinn að
innanverðu með þremur hnífum (1:F).
Leggið pípumatarann á skurðarhólkinn
þannig að öxullinn (8:B) falli inn í pípu á
hólkinum (8:C).
Þrýstið pípumataranum niður og snúið
lássnerlinum (8:D) rangsælis.
Við losun, snúið lássnerlinum (8:D) réttsælis
og fjarlægið pípumatarann.
UPPSETNING OG LOSUN
HANDKNÚINS
GRÆNMETISMATARA (9:A)
Ýtið inn stöðvunarhnappi vélarinnar (2:C).
Við uppsetningu, útbúið skurðarhólkinn að
innanverðu með þremur hnífum (1:F).
Lyftið armi þrýstiplötunnar (9:D) alveg upp.
Rennið öxli grænmetismatarans (9:B) niður í
pípu á hólkinum (9:C).
Þrýstið mataranum niður og snúið honum
rangsælis.
Við losun, ýtið niður öryggishælnum (9:E)
og snúið mataranum fram réttsælis og lyft
honum af.
UPPSETNING OG LOSUN
LOFTKNÚINS
GRÆNMETISMATARA (10:A)
Ýtið inn stöðvunarhnappi vélarinnar (2:C).
Við uppsetningu, útbúið skurðarhólkinn að
innanverðu með þremur hnífum (1:F).
Rennið öxli grænmetismatarans (10:B) niður
í pípu á hólkinum (10:C).
Þrýstið mataranum niður og snúið honum
rangsælis.
Festið loftþrýstislönguna (10:D) í þar til
gerða festingu á stút á mataranum (10:E).
Veljið hraðastillingu fyrir vélina (10:L) og
matarann (10:M) eftir því hvaða
skurðarskífa er notuð, samkvæmt fyrirmælum,
sjá HRAÐASTILLINGAR.
Gangsetjið loftþjöppuna og stillið hana á 6
bar og meðhöndlið hana skv fyrirmælum
framleiðanda.
Athugið loftþrýsting á þrýstimælinum (10:F).
Ákjósanlegur loftþrýstingur er uþb 4 bar, en
þrýstingsþörfin getur verið mismunandi. Ef
þrýstimælir sýnir annan loftþrýsting ber að
draga stillinn (10:G) upp á við, snúa honum
svo þannig að þrýstingsmælirinn sýni um 4
bar og þrýsta honum síðan niður.
Við losun, stöðvið loftþjöppuna og losið
síðan þrýstislönguna (10:D) af stútnum á
mataranum (10:E).
Þrýstið niður öryggishælnum (10:H) og
snúið mataranum fram réttsælis og lyft
honum af.
HRAÐASTILLINGAR
Almennt er hraðastillir vélarinnar (10:L) settur
í stöðu ”2” við allan skurð, að undanteknum
teningsskurði; þá á hraðastillir að vera í
stöðu ”1”.
Þegar loftknúni grænmetismatarinn (10:A) er
notaður eru hraðastillar vélarinnar (10:L) og
grænmetismatarans (10:M) stilltir skv
eftirfarandi töflu:
LGM = loftknúinn grænmetismatari
V = vél.
Venjuleg skurðarskífa 3 mm:
LGM=2 V=2
Venjuleg skurðarskífa 4.5-6 mm:
LGM=3 V=2
Venjuleg skurðarskífa 10-20 mm:
LGM=3 V=1
Teningsskurðarskífa 12.5 mm:
LGM=3 V=1
Gáruskurðarskífa 4.5 mm:
LGM=3 V=2
Fínskurðarskífa 0.5-1.5 mm:
LGM=1 V=2
Fínskurðarskífa 2-3 mm:
LGM=2 V=2
Fínskurðarskífa 4-6 mm:
LGM=3 V=2
Fínskurðarskífa 10 mm:
LGM=3 V=1
Strimlari 2.5x2.5 mm:
LGM=2 V=2
Strimlari 4.5x4.5-6x6 mm:
LGM=3 V=2
Strimlari 10x10 mm:
LGM=3 V=1
Rifskurðarskífa 1.5 mm:
LGM=1 V=2
Rifskurðarskífa 2-6 mm:
LGM=2 V=2
Rifskurðarskífa 8 mm:
LGM=3 V=1
Fínrifskurðarskífa:
LGM=1 V=2
HREINGERNING
Slökkvið fyrst á vélinni og takið hana úr
sambandi, eða slökkvið á straumrofa.
Hreinsið vélina gaumgæfilega þegar eftir
notkun.
Fjarlægið hrærara sjálfmatarans (7:E) með
því að losa róna (7:F) með topplyklinum
(5:C).
Fjarlægið stýrirásirnar tvær (1:K) eða hnífana
þrjá (1:L) með því að losa rærnar (1:M) með
topplyklinum (5:C).
Ef þið hafið notað teningsrist (3:G), lát
hana sitja eftir í vélinni og ýtið fyrst
teningunum sem eftir sitja út með burstanum
(5:B).
Fjarlægið lausa hluta og þvoið þá og þurrkið
vel.
Þvoið aldrei hluti úr léttmálmi í uppþvottavél
nema þá sem merktir eru “diwash”.
Allan aukabúnað merktan ”diwash” má þvo í
uppþvottavél.
Öll skurðaráhöld má þvo í uppþvottavél.
Þurrkið af vélinni með rakri grisju.
Skiljið aldrei hnífa skurðarskífnanna eftir
blauta þegar þeir eru ekki í notkun.
Geymið alltaf skurðarskífurnar (3) á
verkfærahenginu (5:A) á veggnum.

Related product manuals