IS
115
FYRSTA NOTKUN (ÁFRAM)
5. Til að þrífa safnhausinn skaltu fyrst setja ílát undir hann. Ýttu á aðgerðahnappinn til að
velja Espresso. Ýttu skammtahnappinum á 1 og ýttu á
hnappinn. Vélin mun skola
vatni í gegnum safnhausinn og stöðvast sjálfkrafa þegar ferlinu er lokið.
6. Til að hreinsa gufusprotann skaltu beina honum í átt að dreypibakkanum eða ofan í bolla.
Ýttu síðan á aðgerðahnappinn til að velja heitt vatn og ýttu á
hnappinn til að byrja.
Láttu vatnið flæða í 3 til 5 sekúndur og ýttu svo á
hnappinn til að stoppa.
NOTKUN VÖRUNNAR
HVERNIG Á AÐ GERA ESPRESSO KAFFI
1. Veldu síukörfuna sem þú vilt nota. Ýttu síukörfunni í Portafilter síuna þar til hún smellist á
sinn stað.
2. Fylltu síukörfuna með fínmöluðum Espresso kaffibaunum.
3. Bankaðu í Portafilter síuna til að jafna út malaða kaffið og láttu hana hvíla á flötu yfirborði.
Notaðu þjapparann til að þjappa malaða kaffið niður. Sópaðu umframkaffi frá brúninni.
4. Settu Portafilter síuna undir safnhausinn með handfangið stillt til að opna. Lyftu Portafilter
síunni upp í safnhausinni og snúðu til hægri til að læsa.
5. Ýttu á aðgerðahnappinn til að velja Espresso. Ýttu á skammtahnappinn til að velja fjölda
skota 1 (~ 30 ml) eða 2 (~ 60 ml).
6. Ýttu á hnappinn til að keyra valið Espressó ferli.
ATHUGIÐ: Ekki fjarlægja Portafilter síuna á meðan kaffið er að lagast.
RÁÐ: Lengd skotsins ætti að vera á milli 20-30 sekúndur fyrir val á 1 og 2 skotum.
- Ef tímalengdin er minni en 20 sekúndur: malaðu fínna og/eða þjappaðu fastar.
- Ef tímalengdin er meiri en 30 sekúndur: malaðu grófar og/eða þjappaðu lausar.
FORRITUN
Hægt er að forrita þessa Espressóvél. Allar sérstillingar eru vistaðar, jafnvel þótt að vélin
verði rafmagnslaus.
HVERNIG Á AÐ FORRITA ESPRESSO OG HEITAVATNSMAGN
1. Til að breyta forstillta magninu fyrir Espresso fyrir 1 / 2: Ýttu á aðgerðahnappinn til að
velja Espresso. Veldu skammtinn sem þú vilt forrita (1 eða 2). Ýttu á
hnappinn og haltu
honum niðri þar til æskilegt espressómagn er komið í bollann þinn. Ljósin fyrir skammt og
hnappinn blikka á meðan verið er að forrita þann skammt sem þú valdir. Ljósin hætta
að blikka þegar forritun er lokið.
2. Til að breyta forstillta vatnsmagninu fyrir 1 / 2: Ýttu á aðgerðahnappinn til að velja vatn.
Veldu skammtinn sem þú vilt forrita (1 eða 2). Ýttu á
hnappinn og haltu honum niðri þar
til æskilegt vatnsmagn er komið í bollann þinn. Ljósin fyrir skammt og
hnappinn blikka
á meðan verið er að forrita þann skammt sem þú valdir. Ljósin hætta að blikka þegar
forritun er lokið.
ATHUGIÐ: Ýttu á „skammtahnappinn“ og haltu honum niðri í 3 sekúndur til að
endurheimta allar upphaflegar verksmiðjustillingar. Breytingar á upphaflegu Espresso eða
vatnsmagni geta haft áhrif á ætlaða frammistöðu vélarinnar.