EasyManua.ls Logo

KitchenAid 5KSM2FPPC - Page 121

KitchenAid 5KSM2FPPC
184 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
IS
121
ÁBYRGÐARSKILMÁLAR KITCHENAID
(„ÁBYRGГ) (ÁFRAM)
e) Ábyrgðaraðili skal veita neytanda eftirfarandi þjónustu undir þessari ábyrgð, eftir ákvörðun ábyrgðaraðila, ef galli kemur í ljós á
ábyrgðartímabilinu:
- Viðgerð á gölluðu vörunni eða íhlutnum, eða
- Skipti á gölluðu vörunni eða íhlutnum fyrir nýja. Ef varan er ekki lengur í boði er ábyrgðaraðila heimilt skipta út vörunni
fyrir jafn dýra eða dýrari vöru.
f) Ef neytandi vill leggja fram kröfu undir ábyrgðinni verðu hann hafa samband við innlendan þjónustuaðila KitchenAid á
www.kitchenaid.is (Netfang: sala@rafland.is ; Símanúmer +354 520 7900) eða beint við ábyrgðaraðilann í KitchenAid
Europa, Inc. Nijverheidslaan 3, Box 5, 1853 Strombeek-Bever, Belgíu.
g) Ábyrgðaraðili skal bera kostnað vegna viðgerðar ásamt varahlutum og sendingarkostnað vegna afhendingar á gallalausri vöru
eða íhlut. Ábyrgðaraðili skal einnig bera sendingarkostnað vegna skila á gölluðu vörunni eða íhlutnum ef ábyrgðaraðilinn eða
innlendi KitchenAid þjónustuaðilinn bað um gölluðu vörunni eða íhlutnum yrði skilað. Hins vegar skal neytandi bera kostnað
vegna viðeigandi umbúða fyrir örugg skil á gölluðu vörunni eða íhlutnum.
h) Neytandi verður framvísa kvittun eða reikning sem sönnun fyrir kaupum á vörunni ef hann vill leggja fram kröfu undir
ábyrgðinni.
2. TAKMARKANIR Á ÁBYRGÐINNI
a) Ábyrgðin á eingöngu við um vörur sem eru notaðar í heimilistilgangi og ekki um faglegar vörur eða vörur notaðar í atvinnuskyni.
b) Ábyrgðin á ekki við um eðlilegt slit, ranga notkun eða misnotkun, ef ekki er farið eftir notkunarleiðbeiningunum, ef varan er
notuð við ranga rafspennu, ef uppsetning eða notkun brjóta gegn viðeigandi reglugerðum um rafmagn, og ef óhóflegt afl er
notað (t.d. högg).
c) Ábyrgðin á ekki við ef vörunni hefur verið breytt eða skipt um spennu, t.d. ef 120 V vörum er breytt til nota 220-240 V.
d) Veitt þjónusta samkvæmt ábyrgðinni framlengir ekki ábyrgðartímabilið heldur markar hún upphaf nýs ábyrgðartímabils.
Ábyrgðartímabilinu fyrir ísetta varahluti lýkur á sama tíma og ábyrgðartímabilið fyrir alla vöruna.
Þjónustuaðilar KitchenAid geta enn aðstoðað neytendur með spurningar og veitingu upplýsinga eftir ábyrgðin er útrunnin, eða fyrir
vörur sem falla ekki undir ábyrgð. Hægt er nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu okkar: www.kitchenaid.eu
VÖRUSKRÁNING
Skráðu nýja KitchenAid tækið þitt núna: http://www.kitchenaid.eu/register
©2022 Öll réttindi áskilin.
KITCHENAID og hönnun hrærivélarinnar eru vörumerki í Bandaríkjunum og annars staðar.

Table of Contents

Related product manuals