EasyManua.ls Logo

MicroPower Access 32 - Page 98

MicroPower Access 32
208 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
ÍSLENSKA
2. Aftengið hleðslutækið frá rafhlöðunni.
Færibreytustillingar
Aðgát
Rangar færibreytur fyrir hleðslu geta skemmt
rafgeyminn.
Kannið alltaf færibreytur hleðslu áður en hleðsla
hefst.
Athuga færibreytur fyrir BMS-
stýrða hleðslu
Athugið:
Þegar hleðslutækið er stillt fyrir BMS-stýringu er
ekki hægt að breyta færibreytum hleðslu á
stjórnborði hleðslutækisins.
Stjórnborð, aðalgluggi:
1. Ýtið á OK.
2. Veljið [Service] (þjónusta] með því að ýta á ör
niður.
3. Ýtið á OK.
4. Veljið [CAN] með því að ýta á ör niður.
5. Ýtið á OK.
Núverandi stillingar fyrir CAN eru sýndar.
6. Gætið þess að [Function] (virkni) sé stillt á BMS
Ctrl (ytri stjórnun), þ.e. að BMS-stýrð hleðsla sé
virk. Ef [Function] er stillt á Disabled (óvirkt)
þýðir það að hleðsla blýsýrurafgeyma sé virk.
7. Gangið úr skugga um að [Node ID] (auðkenni
hnúts) sé stillt á CAN-ID (CAN-auðkenni) sem
framleiðandi rafgeymisins gefur upp.
Athuga færibreytur hleðslu
Stjórnborð, aðalgluggi:
1. Ýtið á OK.
2. Veljið [Service] (þjónusta] með því að ýta á ör
niður.
3. Ýtið á OK.
4. Veljið [Charging param] (færibreytur hleðslu)
með því að ýta á ör niður.
5. Ýtið á OK.
Færibreytur hleðslu eru sýndar.
[Source]
Uppruni hleðslubreytna. BMU birtir færibreytur
rafgeymiseftirlits og User def skilgreinir
færibreytur sem sýndar eru á skjánum.
[Curve] (kúrva)
Sýnir hleðslukúrvu.
[Capacity]
Rafgeymisending í amperstundum.
[Cells]
Fjöldi 2 V rafgeymishólfa.
[Cable Ri (mΩ)]
Viðnám kapals í leiðsluknippi rafgeymis.
[Base load(mA)]
Rafálag í rafhlöðu við hleðslu.
[Battery temperature (°C/ °F)]
Fast rafgeymishitastig sem notað er fyrir
hitastýrða hleðslu.
Breyta færibreytum hleðslu
Athugið:
Aðgangskóða er krafist til að breyta
færibreytustillingum. Sjálfgefinn verksmiðjukóði er
2451.
1. Veljið færibreytuna sem á að breyta samkvæmt
leiðbeiningunum hér að framan.
2. Ýtið á OK.
3. Færið inn aðgangskóðann.
4. Ýtið á OK.
5. Veljið færibreytur til að breyta með ör upp eða
ör niður.
6. Gildinu er breytt með því að ýta á ör til vinstri
eða ör til hægri.
7. Ýtið á OK.
8. Þegar öllum færibreytum hefur verið breytt skal
ýta á ESC þar til aðalgluggi stjórnborðsskjásins
birtist.
Talnagögn
Við hleðslu eru mæld gildi og atvik eru geymd í
viðhaldsskyni. Nálgast má þessar upplýsingar á
stjórnborðsskjánum eða í Access™ Service tool.
Viðhald og úrræðaleit
Mælt er með því að framkvæma athugarnirnar hér
að neðan við úrræðaleit og í tengslum við
viðhaldsvinnu.
98