68
ISL
Öryggisleiðbeiningar
VINSAMLEGAST LESTU EFTIRFARANDI LEIÐBENINGAR VANDLEGA
FYRIR NOTKUN
1.Börn frá 8 ára aldri geta notað búnaðinn, einnig einstaklingar með minni líkamlega,
skynjunarlega eða andlega færni, eða þeir einstaklingar sem vantar reynslu og
þekkingu, ef þeir hafa fengið kennslu eða leiðbeiningar varðandi notkun á búnaðinum á
öruggan hátt og skilja þær hættur sem eru til staðar.
2. Börn mega ekki leika sér með tækið.
3. Börn mega ekki framkvæma þrif og viðhald án eftirlits.
4. Tryggðu að slökkt sé á viftunni og klóin ekki í innstungunni áður en hlífin er fjarlægð.
5. Ef rafmagnssnúran skemmist verður framleiðandi eða þjónustuaðili að skipta um
hana til að forðast hættu.
6. Ekki koma fyrir eða leyfa aðskotahlutum að fara inn í opin á hlífinni þar sem það
getur valdið skemmdum á tækinu eða líkamlegum skaða á notanda.
7. Ekki koma fötum eða tjöldum fyrir ofan á viftuhöfuðið þar sem þau geta sogast inn í
viftuna meðan á notkun stendur og skemmt tækið.
8. Lestu þessar leiðbeiningar áður en varan er notuð og geymið til að fletta upp í þeim
síðar.
9. Ef þú gefur tækið til annars einstaklings skulu leiðbeiningarnar fylgja með.
10. Notaðu tækið eins og lýst er í þessari handbók. Misnotkun og önnur notkun sem
stríðir gegn þessum leiðbeiningum skulu ekki á nokkurn hátt vera á ábyrgð
framleiðanda.
11. Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt eftir er hætta á rafstuði, bruna og líkamstjóni.
12. Ekki nota aukabúnað annan en þann sem mælt er með af framleiðanda.
Aukabúnaður sem ekki er mælt með gæti skemmt búnaðinn og valdið skaða á fólki.
13. Komdu tækinu fyrir á flötu og stöðugu yfirborði sem ekki getur orðið fyrir titringi.
Settu í lóðrétta stöðu. Allar aðrar stöður eru hættulegar.