EasyManua.ls Logo

AEG SKB818E1DS - Ábendingar Og Góð Ráð

AEG SKB818E1DS
36 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Þessi búnaður virkjast sjálfkrafa þegar þörf er
á.
Hægt er að kveikja handvirkt á búnaðinum
eftir þörfum (sjá „DYNAMICAIR-aðgerð“).
Viftan gengur aðeins þegar hurðin er
lokuð.
6. ÁBENDINGAR OG GÓÐ RÁÐ
6.1 Ábendingar um orkusparnað
Skilvirkasta notkun orku er tryggð í þeirri
uppsetningu að skúffum í neðri hluta
heimilistækisins og.hillum sé jafnt dreift.
Staðsetning kassa í hurð hefur ekki áhrif á
orkunotkun.
Ekki opna hurðina oft eða hafa hana opna
lengur en nauðsyn krefur.
Ekki still á of háan hita til að spara orku
nema eiginleikar matarins krefjist þess.
Ef umhverfishitastigið er hátt, hitastýringin
stillt á lágan hita og heimilistækið
fullhlaðið, getur verið að þjappan sé
stöðugt í gangi, en það getur valdið því að
hrím eða ís hlaðist utan á eiminn. Í þessu
tilfelli skaltu setja hitastýringuna í átt að
hærra hitastigi til að leyfa sjálfvirka þíðingu
og spara orku á þann hátt.
Tryggðu gott loftflæði. Ekki hylja
loftræstiristarnar eða götin.
6.2 Ábendingar um kælingu á
ferskum matvælum
Góð hitastilling sem varðveitir ferska
matvöru er +4°C eða lægri.
Sé hærri hiti stilltur fyrir heimilistækið getur
það leitt til styttri endingartíma fyrir
matvælin.
Láttu umbúðir yfir matvælin til að varðveita
ferskleika þeirra og bragð.
Notaðu alltaf lokuð ílát fyrir vökva og fyrir
mat, til að forðast að lykt eða bragð safnist
í hólfið.
Til að forðast víxlmengun á milli eldaðrar
og óeldaðrar matvöru, skal þekja eldaða
matvöru og halda henni aðskildri frá hrárri
matvöru.
Mælst er til þess að matvörur séu þíddar
inn í kælinum.
Ekki stinga heitri matvöru inn í
heimilistækið. Gakktu úr skugga um að
matvaran hafi náð að kólna að stofuhita
áður en gengið er frá henni.
Til að koma í veg fyrir matarsóun skal
alltaf setja ný matvæli fyrir aftan þau eldri.
6.3 Ábendingar um góða kælingu
Ferskvöruhólfið er það sem er merkt (á
merkiplötunni) með .
Kjöt (af öllum gerðum): Pakka inn í
hentugar umbúðir og setja á glerhilluna
fyrir ofan grænmetisskúffuna. Kjöt skal
ekki geyma lengur en 1-2 daga.
Ávextir og grænmeti: Hreinsa vandlega
(fjarlægja alla mold) og geyma í sérstakri
skúffu (grænmetisskúffunni).
Ekki er æskilegt að geyma framandi ávexti
eins og banana, mangó, papæjualdin,
o.s.frv. í kæliskápnum.
Grænmeti, svo sem tómata, kartöflur, lauk
og hvítlauk, skal ekki geyma í
kæliskápnum.
Smjör og ostur: Setja í loftþéttar umbúðir
eða pakka inn í álpappír eða pólýþen-poka
til að útiloka eins mikið loft og hægt er.
Flöskur: Loka með loki og setja í
flöskuhilluna í hurðinni, eða (ef til staðar) í
flöskurekkann.
Til að flýta fyrir kælingu matvara er
æskilegt að kveikja á viftunni. Virkjun
DYNAMICAIR gerir innra hitastigið
einsleitara.
Skoðaðu alltaf „best fyrir“ dagsetningu
varanna til að vita hversu lengi á að
geyma þær.
30 ÍSLENSKA

Related product manuals