EasyManua.ls Logo

AEG TAB6L88EF - Dagleg Notkun; Ábendingar Og Góð Ráð

AEG TAB6L88EF
36 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Ef þú ýtir ekki á neinn hnapp, slekkur
hljóðið á sér sjálfkrafa eftir eina
klukkustund til að forðast truflun.
5. DAGLEG NOTKUN
5.1 Frysta fersk matvæli
Frystihólfið hentar til þess að frysta fersk
matvæli og geyma frosin og djúpfrosin
matvæli til lengri tíma.
Til að frysta fersk matvæli skal
virkjaFrostmaticaðgerðina minnst 24
klukkustundum áður en maturinn sem á að
frysta er settur í frystihólfið.
Dreifið fersku matvælunum jafnt yfir fyrsta
hólfið eða skúffuna talið ofan frá.
Hámarksmagn matvæla sem hægt er að
frysta á sólarhring án þess að bæta við
öðrum ferskum matvælum er tilgreint á
merkiplötunni (merkingu sem staðsett er inni í
heimilistækinu).
Að frystiferlinu loknu fer heimilistækið
sjálfkrafa aftur í fyrri hitastillingu (sjá
„Frostmaticaðgerðina“).
Til að fá frekari upplýsingar, sjá „Ábendingar
um frystingu“.
5.2 Geymsla á frosnum matvælum
Þegar heimilistækið er virkjað í fyrsta sinn
eða eftir notkunarhlé skal láta það ganga í
minnst 3 klukkustundir áður en vörurnar eru
settar í hólfið með kveikt á Frostmatic
aðgerðinni.
Frystiskúffurnar tryggja að það sé auðvelt og
fljótlegt að finna matarpakkann sem vantar.
Ef það á að geyma mikið magn af matvælum,
skal fjarlægja allar skúffur og láta matvælin í
hillurnar.
Geymið matinn ekki nær hurðinni en 15 mm.
VARÚÐ!
Ef þiðnun verður fyrir slysni, til dæmis af
því að rafmagnið fer af, og
rafmagnsleysið hefur varað lengur en
gildið sem sýnt er á merkiplötunni undir
„hækkunartími“, þarf að neyta þídda
matarins fljótt eða elda hann strax, kæla
og frysta hann svo aftur. Sjá „Aðvörun
um háan hita“.
5.3 Þíðing
Djúpfrosinn eða frosinn mat er hægt að þíða í
kælinum í eða í plastpoka undir köldu vatni,
áður en maturinn er notaður.
Þessi aðgerð veltur á því hversu mikill tími er
til boða og tegund matarins. Litla bita má
jafnvel elda frosna.
5.4 Ísmolaframleiðsla
Með þessu heimilistæki fylgir einn eða fleiri
bakkar til ísmolagerðar.
Ekki nota málmverkfæri til að losa
bakkana úr frystinum.
1. Fylltu þessa bakka af vatni.
2. Settu ísbakkana í frystihólfið.
6. ÁBENDINGAR OG GÓÐ RÁÐ
6.1 Ábendingar um orkusparnað
Innri uppsetning heimilistækisins er það
sem tryggir skilvirkustu notkun orku.
Ekki opna hurðina oft eða hafa hana opna
lengur en nauðsyn krefur.
Því kaldari sem stillingin er, því meiri orku
notar hún.
28 ÍSLENSKA

Related product manuals