EasyManua.ls Logo

AEG TAB6L88EF - Bilanaleit

AEG TAB6L88EF
36 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
7.3 Affrysting frystisins
VARÚÐ!
Aldrei nota beitt málmverkfæri til að
skrapa hrím úr eiminum þar sem þau
geta skemmt hann.
Notaðu ekki vélrænan búnað eða aðrar
aðferðir til að hraða þíðingarferli, annan
en þann sem framleiðandinn mælir með.
Notið ekki íssköfuna sem fylgir með til að
undirbúa mat.
Um 12 klukkustundum fyrir þíðingu skaltu
stilla á lægra hitastig til þess að byggja
upp fullnægjandi kuldaforða ef einhver
truflun skyldi verða á aðgerð.
Eitthvað magn af hrími mun alltaf myndast á
frystihillunum og í kringum efsta hólfið.
Affrystu frystinn þegar hrímlagið er orðið 3-5
mm þykkt.
1. Slökktu á heimilistækinu eða taktu það úr
sambandi við rafmagnsinnstunguna á
veggnum.
2. Fjarlægðu allan mat sem hefur verið
geymdur og láttu á svalan stað.
VARÚÐ!
Ef hitastig frosins matar hækkar
meðan á þíðingu stendur getur það
minnkað geymsluþol hans.
Ekki snerta frosnar vörur með
blautum höndum. Hendur geta frosið
við vörurnar.
3. Láttu hurðina standa opna. Verðu gólfið
gegn vatni frá þíðingunni, t.d. með klút
eða flötu íláti.
4. Til að hraða þíðingunni skaltu setja pott af
volgu vatni í frystihólfið. Auk þess skaltu
fjarlægja ísstykki sem brotna af áður en
affrystingunni lýkur. Notaðu íssköfuna
sem fylgir með til þess.
5. Þegar þíðingunni er lokið skal þurrka
hólfið vel að innan. Geymdu íssköfuna til
notkunar seinna.
6. Kveiktu á heimilistækinu og lokaðu
hurðinni.
7. Stilltu hitastillinn þannig að
hámarkskæling náist og leyfðu tækinu að
ganga í að minnsta kosti 3 klukkustundir
áður en þessi stilling er notuð.
Aðeins þá skal setja matvæli aftur í
frystihólfið.
7.4 Tímabundið ekki í notkun
Þegar heimilistækið er ekki í notkun til lengri
tíma, skal grípa til eftirfarandi ráðstafana:
1. Aftengja tækið frá rafmagni.
2. Fjarlægja allan mat.
3. Affrystu heimilistækið.
4. Hreinsa heimilistækið og alla aukahluti
þess.
5. Hafa skal hurðina opna til að koma í veg
fyrir vonda lykt.
8. BILANALEIT
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um öryggismál.
8.1 Hvað skal gera ef…
Vandamál Möguleg ástæða Lausn
Heimilistækið virkar ekki. Slökkt er á heimilistækinu. Kveiktu á heimilistækinu.
ÍSLENSKA 31

Related product manuals