EasyManua.ls Logo

Align Technology Vivera - Page 18

Align Technology Vivera
30 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Notkun Vivera-tanngóma.
Mikilvægt er að nota tanngómana allan
þann tíma sem tannlæknirinn hefur mælt
fyrir um. Hér eru nokkur ráð til að stuðla
að réttri notkun og forðast skemmdir á
tanngómunum.
Mundu alltaf eftir að
1. Skola nýja tanngóma vandlega með köldu vatni áður en
þeir eru settir í.
Athugaðu: Ef þú nnur fyrir sárum verk eða miklum óþægindum
skaltu hætta notkun tanngómanna og hafa tafarlaust samband
við tannlækninn.
Athugaðu: Farðu varlega þegar þú tekur tanngómana úr. Ekki beita
miklum krafti við að sveigja eða snúa tanngómunum. Hafðu samband við
tannlækninn ef ertt reynist að fjarlægja tanngómana.
Athugaðu: Ef tanngómurinn brotnar skaltu hætta notkun og leita
tafarlaust aðstoðar hjá tannlækninum.
Ísetning tanngóms
1. Gakktu úr skugga um að þú sért með réttan góm – efri
tanngóm fyrir tennur í efri gómi og neðri tanngóm fyrir
tennur í neðri gómi.
2. Til að forðast að gómunum sé ruglað saman eru þeir merktir
með „U“ („upper“) fyrir efri tannboga og „L“ („lower“) fyrir
neðri tannboga, auk einkvæms meðferðarnúmers.
3. Ekki skiptir máli hvort efri eða neðri tanngómur er settur
í á undan. Við ísetningu skal þrýsta gómnum varlega yr
framtennurnar. Svo skal beita jöfnum þrýstingi með því að
ýta með ngurgómunum efst á vinstri og hægri endajaxlana
þar til gómurinn smellur á sinn stað. Gómarnir eiga að sitja
þægilega og ekki skal þvinga þá á sinn stað.
4. Til að forðast skemmdir á tanngómunum má ekki bíta í þá til
að koma þeim í rétta stöðu.
Tanngómur tekinn úr
1. Byrjaðu á að losa góminn af endajöxlunum öðrum megin með
ngrunum og færðu þig svo jafnt og þétt yr á hinn endann.
2. Ekki taka gómana úr oftar en þörf krefur, til að forðast
skemmdir á þeim.
3. Ekki nota oddhvassa hluti til að fjarlægja gómana.
4. Skolaðu tanngóminn tafarlaust með vatni, hristu af mesta
vatnið og settu góminn svo í meðfylgjandi hulstur.
Dagleg umhirða og
viðhald Vivera-tanngóma
1. Hreinsaðu tanngómana fyrir hverja ísetningu. Notaðu
hreinsunarker Invisalign fyrir skinnur (ráðlagt) eða
svipaða vöru eða mjúkan tannbursta með vatni eða
svolitlu tannkremi.
2. Skolaðu hvorn tanngóm vandlega með vatni eftir
hverja hreinsun.
3. Ekki má hreinsa tanngóma með hreinsibúnaði fyrir
gervitennur eða láta þá liggja í munnskoli. Þessar vörur geta
skemmt yrborð tanngómsins og leitt til þess að hann verði
gljáalaus og sýnilegri.
4. Haltu tanngómunum frá heitu vatni, hitagjöfum og
ertandi efnum.
5. Geymdu tanngómana þar sem börn og gæludýr ná ekki til.
6. Tanngómar geta valdið ofnæmisviðbrögðum hjá sumum
notendum. Í slíkum tilfellum skal hætta notkun og hafa
samband við lækni tafarlaust.
Íslenska (Icelandic)
Vivera-tanngómakerð er sérsmíðaður tannréttingabúnaður
úr þunnu og glæru plasti sem fæst gegn ávísun frá lækni.
Tanngómana má taka úr og þeir viðhalda tanngerð sjúklingsins
og koma í veg fyrir að tennurnar færist úr stað.