EasyManua.ls Logo

Align Technology Vivera - Page 19

Align Technology Vivera
30 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Algengar spurningar og svör.
Spurning: Hefur notkun Vivera-tanngóma áhrif á það
hvernig ég tala?
Svar: Þeir geta haft tímabundin áhrif á tal. Það gæti vottað
fyrir smámæli í eina eða tvær vikur. Þegar tungan venst
tanngómunum ætti smámæli eða aðrir minniháttar
talörðugleikar vegna þeirra að hverfa.
Spurning: Hvað ef ég týni tanngómnum eða hann skemmist?
Svar: Ef tanngómur týnist eða eyðileggst skaltu hafa tafarlaust
samband við tannlækninn.
Spurning: Hvað ef ég gleymi að nota tanngóminn?
Svar: Ef tanngómarnir eru ekki notaðir í tilskilinn tímafjölda á
dag getur það haft neikvæð áhrif á tilætlaðan árangur.
Spurning: Hvað á ég að gera ef nýju tanngómarnir mínir
passa ekki?
Svar: Gómarnir eiga að sitja þægilega og ekki skal þvinga þá á
sinn stað. Ef upp koma veruleg vandamál með hvernig
tanngómurinn passar skal hætta notkun og hafa tafarlaust
samband við tannlækninn.
Spurning: Er sársaukafullt að nota tanngóma?
Svar: Sumir notendur nna fyrir lítilsháttar eymslum í tönnum.
Slíkt er eðlilegt. Eymslin hverfa smám saman eftir örfáa daga. Ef
ekki skaltu hafa samband við tannlækninn umsvifalaust.
Spurning: Er í lagi að drekka heita eða kalda drykki
með Vivera-tanngóma?
Svar: Að vatni undanskildu mælum við með því að þú borðir
hvorki né drekkir með tanngómana í munninum. Það er til þess
að forðast holur og mislitun á tanngómunum og til að koma í
veg fyrir að tanngómarnir aagist vegna mjög heitra drykkja.
Spurning: Get ég tuggið tyggigúmmí með Vivera-tanngóma?
Svar: Nei, tyggigúmmí festist við tanngómana. Við ráðleggjum
þér að fjarlægja tanngómana fyrir allar máltíðir eða aukabita.
Spurning: Lita reykingar eða munntóbak tanngómana?
Svar: Við mælum ekki með tóbaksneyslu þegar tanngómarnir
eru notaðir því að hætta er á að þeir mislitist.
Tilhlýðileg munnhirða
1. Taktu tanngómana úr þegar þú borðar og drekkur, nema
þegar þú drekkur vatn.
2. Burstaðu tennur og notaðu tannþráð eftir hverja máltíð eða
aukabita áður en þú kemur tanngómunum aftur fyrir. Ef þú
ert með einhverjar spurningar varðandi hreinlætisaðferðir
skaltu hafa samráð við tannlækninn.
3. Til að tryggja áframhaldandi tannheilsu og heilbrigði
góma er mælt með reglubundnu eftirliti með tönnum
og tannhreinsun.
Geymsla Vivera-tanngóma
Tanngómunum fylgir hulstur til að geyma þá í. Þegar
tanngómarnir eru ekki í notkun er mælt með því að þeir séu
ávallt geymdir í hulstrinu til þess að forðast að þeir týnist
eða skemmist.
Athugaðu: Ef þú ert með frekari spurningar eftir lestur þessa bæklings
skaltu hafa samráð við tannlækninn þinn.
Notist aðeins af tannlæknum – lyfseðilsskylt.