EasyManua.ls Logo

Electrolux HOI622S - Uppsetning

Electrolux HOI622S
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Notið ekki heimilistækið sem vinnusvæði
eða geymslusvæði.
Ef yfirborð heimilistækisins er sprungið
skal samstundis aftengja það frá aflgjafa.
Þetta er til að koma í veg fyrir raflost.
Notendur sem eru með gangráð verða að
vera í að lágmarki 30 cm fjarlægð frá
spanhellum þegar heimilistækið er í gangi.
Þegar þú setur mat í heita olíu geta
myndast olíuskvettur.
AÐVÖRUN!
Hætta á eldsvoða og sprengingu
Fita og olíur geta losað eldfimar gufur
þegar þær eru hitaðar. Haltu eldi eða
hituðum hlutum fjarri fitu og olíu þegar þú
notar þær við matreiðslu.
Gufur sem mjög heit olía losar geta valdið
fyrirvaralausum bruna.
Notuð olía sem getur innihaldið
matarleifar getur valdið eldsvoða við
lægra hitastig en olía sem er notuð í fyrsta
skipti.
Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta
með eldfimum efnum í, nálægt, eða á
heimilistækið.
AÐVÖRUN!
Hætta á skemmdum á
heimilistækinu.
Ekki skal hafa heit eldunaráhöld á
stjórnborðinu.
Settu ekki heitt pönnulok á gleryfirborð
helluborðsins.
Ekki láta eldunaráhöld sjóða þangað til að
þau þorna.
Gættu þess að hlutir eða eldunaráhöld
detti ekki á heimilistækið. Yfirborð
tækisins getur skemmst.
Ekki skal virkja eldunarhellurnar með
tómum eldunaráhöldum eða án
eldunaráhalda.
Ekki láta álpappír ofan á heimilistækið.
Eldunaráhöld sem eru gerð úr steyptu
járni, áli eða sem eru með ójafnan botn
geta rispað glerið/ glerpostulínið. Alltaf
skal lyfta þessum hlutum upp þegar þú
þarft að færa þá til á eldunarhellunum.
Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
2.4 Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Slökktu á heimilistækinu og láttu það
kólna fyrir hreinsun.
Notaðu ekki vatnsúða og gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum
klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni.
Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni
eða málmhluti.
2.5 Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið. Notaðu eingöngu
upprunalega varahluti.
Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós
sem varahluti sem seld eru sérstaklega:
Þessi ljós eru ætluð að standast
öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum
eins og hitastig, titring, raka eða til að
senda upplýsingar um rekstrarstöðu
tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í
öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í
herbergjum heimila.
2.6 Förgun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða köfnun.
Hafðu samband við staðbundin yfirvöld
fyrir upplýsingar um hvernig skuli farga
heimilistækinu.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
3. UPPSETNING
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
ÍSLENSKA 51

Related product manuals