7. UMHIRÐA OG HREINSUN
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um öryggismál.
7.1 Innra byrði hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta sinn,
skal þvo innri og alla innri fylgihluti með volgu
vatni og hlutlausri sápu til að losna við
dæmigerða lykt af nýrri vöru og þurrka svo
vandlega.
VARÚÐ!
Ekki nota þvottaefni, slípiduft, klór eða
olíublönduð hreinsiefni, þar sem það
skemmir áferðina.
VARÚÐ!
Aukahlutir og hlutar heimilistækisins eru
ekki ætlaðir fyrir uppþvottavélar.
7.2 Reglubundin hreinsun
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og aukahluti með
volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega og
strjúktu af þeim svo þær séu hreinar og
lausar við óhreinindi.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
7.3 Ísskápurinn affrystur
Frostið er losað sjálfkrafa úr eimi kælihólfsins
við eðlilega notkun. Vatnið eftir affrystinguna
lekur út í gegnum trekt í sérstakt ílát aftan á
heimilistækinu fyrir ofan þjöppuna, þar sem
það gufar upp.
Það er mikilvægt að hreinsa reglulega
niðurfallsgatið fyrir affallsvatnið í miðri rás
kælihólfsins til að koma í veg fyrir að vatnið
flæði upp úr og leki á matinn inni í kælinum.
Það skal nota rörahreinsinn sem fylgir með
heimilistækinu við þrifin.
7.4 Affrysting frystisins
VARÚÐ!
Aldrei nota beitt málmverkfæri til að
skrapa hrím úr eiminum þar sem þau
geta skemmt hann.
Notaðu ekki vélrænan búnað eða aðrar
aðferðir til að hraða þíðingarferli, annan
en þann sem framleiðandinn mælir með.
Um 12 klukkustundum fyrir þíðingu skaltu
stilla á lægra hitastig til þess að byggja
upp fullnægjandi kuldaforða ef einhver
truflun skyldi verða á aðgerð.
Eitthvað magn af hrími mun alltaf myndast á
frystihillunum og í kringum efsta hólfið.
Affrystu frystinn þegar hrímlagið er orðið 3-5
mm þykkt.
1. Slökktu á heimilistækinu eða taktu það úr
sambandi við rafmagnsinnstunguna á
veggnum.
2. Fjarlægðu allan mat sem hefur verið
geymdur og láttu á svalan stað.
VARÚÐ!
Ef hitastig frosins matar hækkar
meðan á þíðingu stendur getur það
minnkað geymsluþol hans.
Ekki snerta frosnar vörur með
blautum höndum. Hendur geta frosið
við vörurnar.
3. Láttu hurðina standa opna. Verðu gólfið
gegn vatni frá þíðingunni, t.d. með klút
eða flötu íláti.
32 ÍSLENSKA