EasyManua.ls Logo

Electrolux LTB1AE28W0 - Ábendingar Og Góð Ráð

Electrolux LTB1AE28W0
40 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
merkiplötunni (merkingu sem staðsett er inni í
heimilistækinu).
5.5 Geymsla á frosnum matvælum
Þegar heimilistækið er virkjað í fyrsta sinn
eða eftir notkunarhlé skal láta það ganga í
minnst 3 klukkustundir áður en vörurnar eru
settar í hólfið með kveikt á Super Freeze
aðgerðinni.
VARÚÐ!
Ef þiðnun verður fyrir slysni, til dæmis af
því að rafmagnið fer af, og
rafmagnsleysið hefur varað lengur en
gildið sem sýnt er á merkiplötunni undir
„hækkunartími“, þarf að neyta þídda
matarins fljótt eða elda hann strax, kæla
og frysta hann svo aftur.
5.6 Þíðing
Djúpfrosin matvæli eða frosin matvæli er
hægt að afþýða í kælihólfinu eða við stofuhita
fyrir notkun, eftir því hversu mikill tími gefst
fyrir þessa aðgerð.
Litla bita má jafnvel elda þó þeir séu enn
frosnir, beint úr frystinum: í slíku tilfelli tekur
eldun lengri tíma.
5.7 Ísbakki
Með þessu heimilistæki fylgir einn eða fleiri
bakkar til ísmolagerðar.
Ekki nota málmverkfæri til að losa
bakkana úr frystihólfinu.
1. Fylltu ísbakkana af vatni.
2. Settu ísbakkana í frystihólfið.
6. ÁBENDINGAR OG GÓÐ RÁÐ
6.1 Ábendingar um orkusparnað
Frystir: Innri uppsetning heimilistækisins er
það sem tryggir skilvirkustu notkun orku.
Kælir: Skilvirkasta notkun orku er tryggð í
þeirri uppsetningu að skúffum í neðri hluta
heimilistækisins og.hillum sé jafnt dreift.
Staðsetning kassa í hurð hefur ekki áhrif á
orkunotkun.
Ekki opna hurðina oft eða hafa hana opna
lengur en nauðsyn krefur.
Frystir: Því kaldari sem stillingin er, því
meiri orku notar hún.
Kælir: Ekki still á of háan hita til að spara
orku nema eiginleikar matarins krefjist
þess.
Ef umhverfishitastigið er hátt, hitastýringin
stillt á lágan hita og heimilistækið
fullhlaðið, getur verið að þjappan sé
stöðugt í gangi, en það getur valdið því að
hrím eða ís hlaðist utan á eiminn. Í þessu
tilfelli skaltu setja hitastýringuna í átt að
hærra hitastigi til að leyfa sjálfvirka þíðingu
og spara orku á þann hátt.
Tryggðu gott loftflæði. Ekki hylja
loftræstiristarnar eða götin.
6.2 Ábendingar um frystingu
Virkjaðu Super Freeze aðgerðina að
minnsta kosti 15 klukkustundum áður en
matvælin eru látin í frystihólfið.
Áður en ferskur matur er frystur skal setja
hann í álpappír, plastfilmu eða poka,
loftþétt ílát með loki.
Til að fá skilvirkari frystingu og þíðingu ætti
að skipta matvælunum í minni skammta.
Mælt er með því að láta merkingar og
dagsetningar á öll frosin matvæli. Það
mun hjálpa þér að þekkja matvælin og vita
hvenær þarf að nota þau áður en þau fara
að spillast.
Maturinn á að vera ferskur þegar hann er
frystur til að varðveita gæðin. Sérstaklega
ætti að frysta ávexti og grænmeti eftir
uppskeru til að varðveita öll næringarefni
þeirra.
Ekki frysta dósir eða flöskur með vökva,
sérstaklega kolsýrða drykki - þær geta
sprungið þegar þær eru frystar.
Ekki láta heitan mat í frystihólfið. Kældu
niður að stofuhita áður en hann er látinn
inn í hólfið.
32 ÍSLENSKA

Related product manuals