EasyManua.ls Logo

Emmaljunga NXT90 Classic - Page 235

Emmaljunga NXT90 Classic
268 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
235
NXT90 Classic v 1.0
Mikilvægar upplýsingar
VIÐVÖRUN
Ef einhver hluti þessa leiðarvísis er óljós eða þarfnast frekari skýringa skal hafa
samband við viðurkenndan söluaðila Emmaljunga sem veitir þá frekari aðstoð.
Ekki má breyta þessari vöru með neinum hætti þar sem það getur stefnt öryggi
barnsins í hættu. Framleiðandinn ber EKKI ábyrgð á breytingum sem gerðar
eru á vörunni.
Ekki má setja hluti á skerminn. Notið vagninn aldrei án skermsins.
Ekki má aka með önnur börn eða poka á þessari kerru.
Vagninn er eingöngu ætlaður til að ytja barnið á milli staða. Alls ekki má nota
vagninn sem rúm fyrir barnið.
Ekki má standa eða sitja á fótaskemlinum. Aðeins má nota fótaskemilinn sem
stoð fyrir fótleggi og fætur eins (1) barns. Önnur notkun getur haft alvarleg slys
í för með sér. Hámarksþyngd fyrir fótaskemilinn er 3 kg.
Öll þyngd sem er sett á vagninn (t.d. á handfangið, bakið eða á hliðarnar) he-
fur áhrif á stöðugleika hans. Notið ekki fylgihluti sem framleiðandi viðurkennir
ekki.
Ekki má bæta dýnum í vagninn. Notið eingöngu upprunalegu Emmaljunga-
dýnuna sem fylgir með vörunni.
Hlutir í innkaupakörfunni mega ekki standa út fyrir hliðarnar því þá geta þeir
ækst í hjólunum.
EKKI má nota kerrustykkið eða vagnstykkið sem bílstól.
Ef bílstólar eru notaðir á grindinni koma þeir ekki í staðinn fyrir burðarrúm
eða rúm. Ef barnið þarf að sofa skal leggja það á viðeigandi stað eins og
burðarrúm eða rúm.
Aldrei skal draga vagninn/kerruna með snúningshjólin að framan fyrir aftan sig.
Vagninn/kerran getur snúist af sjálfu sér, sem getur stefnt öryggi í hættu ef ekki
er sýnd aðgát.
Alls ekki má fara með vagninn upp eða niður tröppur. Notið alltaf lyftur til að
fara á milli hæða. Ef ekki verður hjá því komist að fara upp eða niður stiga skal
gæta þess að taka barnið úr vagninum og sjá til þess að ekkert barn sé í vagni-
num eða nálægt honum á meðan.
Alls ekki má fara með vagninn í rúllustiga.
Ekki má nota vöruna í miklum vindi eða þrumuveðri.
Athugið að á lestar- eða neðanjarðarlestarstöðvum geta átt sér stað miklar og
skyndilegar breytingar á loftþrýstingi (vegna vinds eða sogs). Látið vagninn
aldrei standa nálægt lestarteinum nema að hafa báðar hendur á handfanginu
þar sem bremsan ein og sér nægir hugsanlega ekki til að halda vagninum á
sínum stað.
Farið ekki yr lestarteina með barnið í vagninum. Hætta er á að hjólin festist!
Við notkun í almenningssamgöngum (strætisvögnum, lestum o.s.frv.) nægir
ekki að nota eingöngu bremsuna á vagninum. Vagninn getur orðið fyrir álagi
(við skyndilega hemlun, beygjur og ójöfnur á vegi, hraðaaukningu o.s.frv.) sem
hann hefur ekki verið prófaður fyrir samkvæmt gildandi staðli EN1888. Fylgið
í hvívetna þeim tilmælum og leiðbeiningum um örugga festingu barnavagna
sem rekstraraðilum í almenningssamgöngum er skylt að láta í té.
Ekki skal nota þessa vöru sem lækningatæki. Varan er hönnuð og smíðuð í
samræmi við staðalinn EN1888/EN1466. Ef barnið hefur sérstakar læknisfræði-
legar þarr í tengslum við utning skal ráðfæra sig við lækni.
IS