EasyManua.ls Logo

Geberit ACO 201 - Page 113

Geberit ACO 201
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
B310-001&BDC © 02-2006
Notkunarleiðbeiningar ACO 201
Mikilvæg öryggisatriði
Lesið meðfylgjandi öryggisleiðbeiningar Novopress og
fylgið þeim í hvívetna
Lesið notkunarleiðbeiningarnar vandlega áður en verkfærið er
tekið í notkun og fylgið þeim í hvívetna
Geymið notkunarleiðbeiningarnar á sama stað og verkfærið
Farið eftir þeim öryggisreglum sem eiga við í hverju landi
HÆTTA
Sprengihætta
` Notið verkfærið ekki nálægt eldfimum vökva eða sprengifimum gas-
eða rykblöndum
VÖRUN
Slysahætta vegna gáleysis
` Haldið vinnusvæðinu hreinu og snyrtilegu
` Haldið börnum og öðru fólki í hæfilegri fjarlægð á meðan verkfærið er
notað
` Geymið verkfærið á læstum stað þar sem börn ná ekki til
` Sýna skal aðgæslu þegar unnið er með verkfærið
` Standið í stöðugri og réttri líkamsstöðu
IS
` Notandinn má ekki vera þreyttur eða undir áhrifum áfengis eða lyfja
Slysahætta vegna rangrar notkunar
` Ófaglærðum er ekki heimilt að nota verkfærið nema þeir hafi fengið
tilsögn hjá fagmanni
` Haldið verkfærinu alltaf frá líkamanum
` Vinnið ekki með verkfærið yfir höfði
` Notið alltaf hlífðarbúnað og hlífðargleraugu, klæðist hvorki víðum
fatnaði né berið skartgripi
` Haldið síðu hári, fatnaði og hönskum frá hreyfanlegum hlutum
verkfærisins
VARÚÐ
Hætta á tjóni vegna rangrar notkunar
` Verjið verkfærið gegn bleytu og raka
` Borið ekki í sjálft verkfærið; ef bæta á við merkingum skal aðeins nota
límmiða
` Reynið ekki of mikið á verkfærið
` Notið þar til gerða tösku til að flytja og geyma verkfærið og geymið
það á þurrum stað
` Viðhald og virkniprófanir á verkfærinu skulu fara reglulega fram
` Gera skal við bilanir og skemmdir strax á viðurkenndu verkstæði
` Viðurkennd verkstæði skulu annast allar viðgerðir og prófanir á
verkfærinu. Notið eingöngu varahluti frá framleiðanda
113

Related product manuals