EasyManua.ls Logo

Geberit ACO 201 - Page 114

Geberit ACO 201
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Sérstök öryggisatriði
Ábyrgð
Notkun
Notkunarleiðbeiningar ACO 201
HÆTTA
Eldhætta vegna rangrar meðhöndlunar rafhlaða
` Hlaðið rafhlöðuna aðeins í hleðslutækjum sem framleiðandi mælir
með
` Notið aðeins rafhlöður frá framleiðanda
` Gætið þess að snertur rafhlöðunnar komist ekki í snertingu við
málmhluti
VÖRUN
Slysahætta ef kveikt er á tækinu í ógáti
` Haldið ekki á tækinu með fingur á rofanum
` Þegar skipt er um fylgibúnað eða verkfærið er lagt til hliðar skal taka
rafhlöðuna úr því
` Áður en viðhald fer fram skal taka rafhlöðuna úr verkfærinu
` Þegar rafhlaðan er sett í verkfærið verður að vera slökkt á því
Slysahætta vegna efnabruna
Hætta á ertingu og bruna í húð
` Varist snertingu við sýru úr rafhlöðu
` Berist sýra á húð skal strax skola húðina með vatni
` Berist sýran í augu skal strax skola augun með vatni og leita læknis
Hætta er á að klemmast milli hreyfanlegra hluta
` Haldið verkfærinu ekki með þrýstikjöftunum
` Farið ekki með líkamshluta eða hluti á milli þrýstikjaftanna
` Haldið ekki um þrýstikjaftsarmana á meðan pressað er
VARÚÐ
Hætta á tjóni vegna rangrar rafhlöðu
` Gætið þess að spenna rafhlöðunnar sé sú sama og tilgreind er á
merkispjaldi verkfærisins
Veitt er ábyrgð samkvæmt lögum í hverju landi. Nálgast má
upplýsingar um frekari ábyrgð beint hjá söluaðilum Geberit eða á
www.geberit.com.
Aðeins má nota ACO 201 þrýstiverkfærið á rör og þrýstitengi úr
Geberit Mepla og Geberit Mapress þrýstikerfunum.
Aðeins má nota verkfæri og fylgibúnað með samhæfismerkingu .
Hvers kyns önnur notkun telst vera röng. Geberit tekur enga ábyrgð
á því tjóni sem af kann að hljótast.
B310-001&BDC © 02-2006
114

Related product manuals