10
Íslenska
Áður en varan er tekin í notkun
• Þvoðu með uppþvottalegi og skolaðu með vatni
fyrir fyrstu notkun.
Þrif
• Þvoðu vöruna alltaf í höndunum eftir notkun.
• Ekki nota stálull eða annað sem getur rispað
yrborðið. Uppþvottalögur og duft sem herðir
matarolíu getur haft áhrif á yrborðið.
• Botninn er aðeins íhvolfur þegar hann er kaldur
en þenst út og verður atur þegar hann hitnar.
Leyfðu eldunaríláti alltaf að kólna áður en það
er þvegið. Þá fer botninn í sína upprunalegu
lögun og það kemur í veg fyrir að hann verði
ójafn við notkun.
Gott að vita
• Varan hentar til notkunar á allar tegundir af
helluborðum.
• Notaðu hellu sem er jafnstór eða minni en
eldunarílátið til að spara orku.
• Lyftu eldunarílátinu þegar þú færir það til á
glerhelluborði til að koma í veg fyrir að þú rispir
borðið.
• Það er með viðloðunarfrírri húð. Það þýðir að
hægt er að elda mat með lítilli eða engri tu.
• Gættu þess að það þurrsjóði aldrei í
eldunarílátinu því botninn getur skekkst og
viðloðunarfría húðin tapar eiginleikum sínum
við ofhitun.
• Notaðu aðeins viðar- eða plastáhöld án hvassra
brúna.
• Hafðu í huga að handfangið verður heitt þegar
varan er í notkun. Notið alltaf pottaleppa þegar
þú færir vöruna.
• Handfangið getur skemmst vegna loga frá
gashellu.
• Hertu skrúfur með skrúfjárni ef handfangið er
laust.
• Ef þú lendir í vandræðum með þessa vöru
hafðu þá samband við IKEA verslunina/
þjónustufulltrúa eða kíktu á ikea.is.