EasyManua.ls Logo

OUTDOOR CHEF P-420 E - Page 70

OUTDOOR CHEF P-420 E
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
OUTDOORCHEF.COM
70
71
Þegar grillið er í notkun verður það að standa á sléttum og traustum fleti og í öruggri fjarlægð frá eldfimu efni.
Dragið rafmagnssnúruna alveg út áður en grillið er notað. Komið í veg fyrir að snúran snerti grillflötinn eða lokið á grillinu.
Hreinsið alla hluta sem komast í snertingu við matvæli.
Hreyfið OUTDOORCHEF-rafmagnsgrillið ekki úr stað á meðan verið er að grilla eða á meðan það er heitt.
TÆKIÐ TEKIÐ Í NOTKUN
Áður en tækið er tengt við rafmagn skal ganga úr skugga um að veituspennan sé sú sama og tilgreind er á upplýsingaplötunni á tækinu.
Stingið rafmagnsklónni í jarðtengda innstungu (220–240V). MIKILVÆGT: Gætið þess að klemma ekki rafmagnssnúruna. Látið snúruna
ekki hanga niður og gætið þess að ekki sé hætta á að hrasa um hana.
Þetta OUTDOORCHEF-rafmagnsgrill er ekki ætlað til notkunar í atvinnuskyni.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ GRILLA
Hreinsið grillgrindina áður en grillið er notað í fyrsta sinn.
Gætið þess að rafmagnssnúran sé ekki í sambandi við rafmagn.
Gætið þess að snúran snerti ekki heitt grillið.
Komið fitusafnbakkanum fyrir á þar til ætluðum stað í kúlunni.
Komið álfilmunni fyrir á EASY REFLECT og setjið í grillið.
Skiptið um hlífðarfilmuna á EASY REFLECT þegar hún er þakin fituleifum.
Setjið hitaelementið í. Platan „UP“ (upp) á hitaelementinu verður að vera læsileg. Gætið þess að þverbitar hitaelementsins liggi í viðeigandi
götum og að það hafi skorðast vel.
Setjið grillgrindina í.
Setjið lokið á.
HITASTILLIRINN
1 2 3 4 5 6 7
ON
OFF
0
I
0
I
: Aðalrofi í stöðu O / I = Kveikt og slökkt á grillinu
ON
OFF
: Hitastillir: Staðan OFF / ON
: Aðgerðavalhnappar
: Aðgerðavalhnappar
Staða 1: 70–90°C
Staða 2: 150–170°C
Staða 3: 170–190°C
Staða 4: 230–250°C
Staða 5: 250–280°C
Staða 6: 280–310°C
Staða 7: 310–350°C
VARÚÐ: Stillingu 7 má aðeins nota til að snöggsteikja og eingöngu ÁN LOKS. Ef lokið er á getur grillið ofhitnað.
: Gaumljós:
a. Þegar gaumljósið blikkar er grillið að hitna.
b. Þegar gaumljósið logar stöðugt hefur grillið náð réttu hitastigi.