EasyManua.ls Logo

Bosch PowerPack Frame 800 - Uppsetning; Rafhlaða rafhjólsins prófuð fyrir fyrstu notkun; Rafhlaða rafhjólsins hlaðin; Hleðsluvísir utan rafhjólsins

Bosch PowerPack Frame 800
107 pages
Go to English
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 3
Litíumjónarafhlaða PowerPack
Frame 400
PowerPack
Frame 545
PowerPack
Frame 725
PowerPack
Frame 800
Geymsluhitastig °C +10...+40 +10...+40 +10...+40 +10...+40
Leyfilegt hitastig fyrir hleðslu °C 0...+40 0...+40 0...+40 0...+40
Þyngd, u.þ.b. kg 2,2 3,0 4,0 3,9
Varnarflokkur IP55 IP55 IP55 IP55
Litíumjónarafhlaða PowerPack Rack 400 PowerPack Rack 500
Vörukóði BBP3340 BBP3350
Málspenna V= 36 36
Málrýmd Ah 10,8 13,6
Orka Wh 400 500
Notkunarhitastig °C –5...+40 –5...+40
Geymsluhitastig °C +10...+40 +10...+40
Leyfilegt hitastig fyrir hleðslu °C 0...+40 0...+40
Þyngd, u.þ.b. kg 2,7 2,8
Varnarflokkur IP55 IP55
Uppsetning
u Ekki má setja rafhlöðu rafhjólsins niður á óhreina fleti.
Sérstaklega skal forðast að óhreinindi á borð við sand eða
mold komist inn í hleðslutengið og á tengi.
Rafhlaða rafhjólsins prófuð fyrir fyrstu notkun
Prófa skal rafhlöðuna áður en hún er hlaðin í fyrsta sinn eða
notuð á rafhjólinu.
Það er gert með því að ýta á hnappinn til að kveikja/slökkva
(7) til að kveikja á rafhlöðunni. Ef engin ljósdíóða logar í
hleðsluvísinum (6) getur verið að rafhlaðan sé skemmd.
Ef að minnsta kosti ein ljósdíóða í hleðsluvísinum (6) logar,
en ekki allar, þá skal fullhlaða rafhlöðu rafhjólsins áður en
hún er notuð í fyrsta sinn.
u Ef rafhlaða rafhjólsins er skemmd má hvorki hlaða
hana né nota hana. Snúa skal sér til viðurkennds
söluaðila reiðhjóla.
Rafhlaða rafhjólsins hlaðin
u Bosch-rafhlöður fyrir rafhjól sem tilheyra kynslóðinni
the smart system má eingöngu hlaða með
upprunalegu Bosch-hleðslutæki sem tilheyrir
kynslóðinni the smart system.
Athugaðu: Rafhlaðan er hlaðin að hluta í verksmiðju. Til að
tryggja að rafhlaðan skili fullum afköstum skal fullhlaða hana í
hleðslutækinu áður en hún er notuð í fyrsta sinn.
Lesa skal leiðbeiningarnar um hleðslu rafhlöðunnar í
notendahandbók hleðslutækisins og fara eftir þeim.
Hægt er að hlaða rafhlöðuna óháð því hversu mikil hleðsla er
á henni. Óhætt er að stöðva hleðsluna hvenær sem er, því
það veldur ekki skemmdum á rafhlöðunni.
Rafhlaðan er með hitanema sem leyfir hleðslu aðeins þegar
hitastigið er á bilinu 0°C til 40°C.
Ef hitastig rafhlöðunnar er
utan þessara leyfilegu marka
fyrir hleðslu blikka þrjár
ljósdíóður í hleðsluvísinum
(6). Taktu rafhlöðuna úr
sambandi við hleðslutækið
og leyfðu henni að ná
hæfilegu hitastigi.
Ekki tengja rafhlöðuna aftur við hleðslutækið fyrr en hitastig
hennar er aftur innan leyfilegra marka fyrir hleðslu.
Hleðsluvísir utan rafhjólsins
Þegar kveikt er á rafhlöðu rafhjólsins sýna ljósdíóðurnar
fimm í hleðsluvísinum (6) hversu mikil hleðsla er á henni.
Hver ljósdíóða jafngildir þá u.þ.b. 20% hleðslugetu. Þegar
rafhlaðan er fullhlaðin loga allar fimm ljósdíóðurnar.
Þegar kveikt er á rafhlöðunni kemur hleðslustaðan einnig
fram á skjá hjólatölvunnar. Hvað þetta varðar skal lesa
notendahandbók drifeiningarinnar og hjólatölvunnar og fara
eftir því sem þar kemur fram.
Þegar hleðslan á rafhlöðunni er komin niður fyrir 10% blikkar
síðasta ljósdíóðan.
Þegar búið er að hlaða skal taka rafhlöðuna úr sambandi við
hleðslutækið og taka hleðslutækið úr sambandi við rafmagn.
Rafhlaðan sett í rafhjólið og tekin úr því
u Slökkva verður á rafhlöðunni og rafhjólinu áður en
rafhlaðan er sett í festinguna eða tekin úr henni.
u Þegar búið er að setja rafhlöðuna í skal ganga úr
skugga um að hún hafi verið sett rétt í og sé vel fest.
PowerTube-rafhlaða (Pivot) tekin úr (sjámyndA)
Til að taka PowerTube-rafhlöðuna (4) úr skal opna
rafhlöðulásinn (2) með lyklinum (1). Rafhlaðan er
tekin úr lás og fellur í hölduna (8).
Bosch eBike Systems 0 275 007 3PX | (07.02.2023)

Table of Contents

Other manuals for Bosch PowerPack Frame 800

Related product manuals