EasyManua.ls Logo

KitchenAid 5KSM7990X - Page 109

KitchenAid 5KSM7990X
160 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
IS
109
LEIÐBEININGAR FYRIR HRAÐASTILLI (ÁFRAM)
ATHUGIÐ: Notið hraðastillingu 2 til að blanda saman eða hnoða gerdeig. Ef hærri hraði en það
er notaður er mikil hætta á að hrærivélin bili. Deigkrókurinn hnoðar vel flest gerdeig á innan við
4 mínútum.
TAFLA FYRIR RÚMTAK
6,9 L SKÁL
Hvítt hveiti
2 til 2,2 kg
Brauð
8 brauð sem eru 450 g hvert
Kökur/kex
160 stykki
Kartöflumús
3,5 kg
SAMSETNING VÖRUNNAR
1. Slökktu á hrærivélinni með því að stilla hana á „0“ og taktu hana úr sambandi.
2. Færðu skálarlyftustöngina niður.
3. Til að festa skálina við: Settu skálarstuðningana yfir staðsetningarpinnana og ýttu niður
aftan á skálinni þar til skálarpinnarnir smella inn í gormafestinguna.
MIKILVÆGT: Ef skálin er ekki tryggilega smellt á sinn stað verður hún óstöðug og skjögrar
við notkun.
4. Til að festa fylgihluti: Settu fylgihlutinn á skaftið og ýttu upp eins langt og hægt er. Snúðu
fylgihlutnum réttsælis til að krækja honum yfir pinnann á skaftinu.
5. Til að rétta skálina upp: Snúðu skálarlyftustönginni beint upp. Skálin verður alltaf að vera
í uppréttri stöðu þegar verið er að hræra.
NOTKUN VÖRUNNAR
VIÐVÖRUN
Hætta á raflosti
Settu í samband við jarðtengda innstungu.
Ekki fjarlægja jarðtenginguna.
Ekki nota millistykki.
Ekki nota framlengingarsnúru.
Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum getur það leitt til dauða,
elds eða raflosts.
1.
Settu í samband við jarðtengda innstungu. Byrjaðu á minni hraða svo ekkert skvettist upp
úr og hækkaðu hann smám saman. Sjá „Leiðbeiningar fyrir hraðastilli“.

Table of Contents