EasyManua.ls Logo

Etac R82 x:panda shape - Page 160

Etac R82 x:panda shape
161 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
etac.com
160
IS
Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi tækis í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð
tækisins að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notanda
og/eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki má sinna þjónustu og viðhaldi
meðan notandinn situr í stólnum. Ef þörf krefur skal hafa samband við söluaðila til að fá aðstoð við
uppsetningu og notkun eða upplýsingar um hvernig skuli sinna þjónustu og viðhaldi tækisins.
Endingartími
Endingartími tækisins við venjulega notkun
er átta ár, svo framarlega sem viðhald og
þjónusta fer fram og er skráð í samræmi við
leiðbeiningar framleiðanda. Tækinu verður
hugsanlega úthlutað á annan notanda innan
þessa endingartíma.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana fer eftir notkun og sliti. Mælt er
með því að tækið sé skoðað árlega, í hvert sinn
sem því er úthlutað á annan notanda og eftir
langtíma geymslu (lengur en 4 mánuðir). Aðili
sem hefur skilning á notkun tækisins skal sjá
um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Farið yr og stillið eftirfarandi í samræmi við
fyrirhugaða notkun (ef við á):
Stillingarvalkostir fyrir bak, mjaðmir og fætur
Halla, hreyngar og læsingar á stólbaki
Herða skal rær, bolta og handföng á tækinu
Leita skal eftir sliti á tengjum og sylgjum
Leita skal eftir merkjum um sprungur eða slit
Ganga skal úr skugga um að allar merkingar á
vörunni séu heilar.
Gera skal við eða skipta um skemmda eða
slitna hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
þurrka öll óhreinindi af tækinu með klút sem
vættur hefur verið með volgu vatni og mildu klórfríu
hreinsiefni/sápu, og leyfa tækinu að þorna fyrir
notkun. Leita skal eftir merkjum um skemmdir eða
slit.
Þvottur
Aðalhluti tækis
Tækið má þvo við 60°C með mildu þvottaefni
í 10 mínútur í þvottavél sem er ætluð fyrir
lækningatæki. Notið þurrkunaraðgerð
vélarinnar til að þurrka tækið. Fjarlægið alla
aukahluti og þvoið þá sérstaklega.
Efni og áklæði
Sessuáklæðið má þvo við 60°C með mildu
þvottaefni í þvottavél.
Takið áklæðið af svampinum fyrir þvott.
Svampur
Ekki er ráðlagt að þvo hluta sem eru úr svampi.
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo tækið og alla aukahluti
í höndunum. Notið volgt vatn og milt klórfrítt
hreinsiefni/sápu og leyð öllum hlutum
þorna fyrir notkun.
Sótthreinsun
Tækið má sótthreinsa með 70%
sótthreinsispritti. Ráðlagt er að þurrka öll
óhreinindi af tækinu með klút sem vættur
hefur verið með volgu vatni og mildu klórfríu
hreinsiefni/sápu, og leyfa tækinu að þorna fyrir
sótthreinsun.
Efni
Ryðfrítt stál
Ál
Plast
Gúmmí
Pólýúretan
Gervigúmmí
Ipanema
Stál
Sinkblendi
Messing.
Yrborðsmeðhöndlun
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yrborðs
hafa verið notaðar til að varna tæringu:
Lakkað yrborð = pólýesterdufthúðun eða ED-
húðun
Ólakkaðir hlutar úr áli = rafhúðun
Ólakkað yrborð úr stáli = sinkhúðun.