EasyManua.ls Logo

Hallde RG-350 - Page 30

Hallde RG-350
37 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Hällde RG-350
(IS)
Aðvörun!
Varist að skera ykkur á beittum
hnífum og lausum vélarhlutum.
Stingið aldrei fingrunum ofan í
sjálfmatarann (4:C).
Notið ávallt stautinn (1:G) við
skurð gegnum mötunarpípuna
(1:H) og stingið aldrei fingrunum
ofan í pípuna.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að tengja RG-350 í 3-fasa
útfærslu.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að annast viðgerðir á
vélinni og opna vélarhúsið.
Grípið aðeins um handfang
þrýstiplötunnar (1:L) þegar opna
skal matarann eða loka honum.
Hnífskrúfuna (1:J) á að losa
réttsælis með lyklinum (1:K).
ÚTPÖKKUN
Gangið úr skugga um að jafnvel smæstu
hlutar fylgi vélinni, að hún sé í lagi og ekkert
hafi skemmst í flutningi. Kvartanir verða að
berast umboðsmanni vélarinnar innan átta
daga.
TENGING
Tengið vélina við rafstraum með réttri
uppgefinni spennu.
Vélinni skal búinn staður á bekk eða borði
sem er u. þ.b. 500 mm hátt.
Festið verkfærahengi (4:A) fyrir
skurðarskífurnar (3) á vegg nálægt vélinni til
öryggis og hagræðis.
Gangið úr skugga um eftirfarandi tvö atriði
án þess að skurðarskífur eða útmötunarskífa
(1:D) séu í vélinni.
Að vélin stöðvist þegar þrýstiplötunni (1:A)
er lyft og snúið til hliðar og fari aftur í gang
þegar plötunni er snúið til baka og þrýst
niður.
Að ekki sé unnt að gangsetja vélina ef
mataranum/lokinu er lyft og þrýstiplötunni
ýtt niður.
Ef misbrestur er á þessu, kallið þá til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í notkun.
UPPSETNING Á ÞRÝSTIPLÖTU
Grípið báðum höndum um þrýstiplötuna á
arminum (5:A) og rennið öxulendanum (5:B)
í festingu sína á vélinni (5:C).
Þrýstið plötunni niður með hægri lófa eins
langt og hún kemst (5:D).
LOSUN ÞRÝSTIPLÖTU
Lyftið þrýstiplötunni (1:A) og snúið henni til
hliðar þannig að matarinn/lokið (1:C) sé
opið.
Grípið báðum höndum um þrýstiplötuna
(5:A).
Dragið þrýstiplötuna upp með hægri hendi.
UPPSETNING SJÁLFMATARA
Mátið sjálfmatarann (5:E) við matarann/
lokið (5:F) þannig að öxull sjálfmatarans
(5:G) falli í festingu sína á vélinni (5:H) og
lássnerill sjálfmatarans (5:I) vísi beint út frá
vélinni (í ólæstri stöðu).
Þrýstið sjálfmataranum niður í matarann/
lokið eins langt og unnt er.
Snúið lássnerli sjálfmatarans rangsælis eins
og unnt er (í læsta stöðu)
og skrúfið festiskrúfu sjálfmatarans (5:J) fasta
réttsælis.
LOSUN SJÁLFMATARANS
Snúið lássnerli sjálfmatarans (5:I) réttsælis
þannig að hann vísi beint út frá vélinni (í
ólæstri stöðu) og losið festiskrúfu
sjálfmatarans (5:J) rangsælis. Fjarlægið
sjálfmatarann.
RÉTT VAL Á SKURÐARSKÍFUM
Við teningsskurð verður teningsrist (3:G) að
vera jafnstór eða stærri en skurðarskífan
(3:A eða D).
Venjuleg skurðarskífa (3:A): Sker fast hráefni.
Sker í teninga ef hún er notuð með teningsrist
af gerð 1 (3:G1).
Teningsskurðarskífa (3:B). Sker í teninga,
notuð með teningsrist af gerð 1 (3:G1) frá
12.5x12.5 mm og upp úr.
Gáruskurðarskífa (3:C): Fyrir rifflaðar
sneiðar.
Fínskurðarskífa með 2 hnífum (3:D2): Sker
fast og mjúkt hráefni. Strimlar kál.
Fínskurðarskífa með 1 hníf (3:D1): Sker fast,
mjúkt, safaríkt og viðkvæmt hráefni. Strimlar
salatsblöð. 4 mm hakkar lauk, notuð með
teningsrist af gerð 1 (3:G1) 10x10 mm og
stærri. 4, 6 og 10 mm sker í teninga, notuð
með teningsrist af gerð 1. 14 og 20mm sker
í teninga, notuð með teningsrist af gerð 2
(3:G2).
Langskurðarskífa (3:F): Strimlar, sker bognar
franskar kartöflur. 2.5x6 mm strimlar hvítkál.
Teningsrist af gerð 1 (3:G1): Sker í teninga,
notuð með viðeigandi skurðarskífu. Ónothæf
með 14 og 20 mm fínskurðarskífu! Sjá um
teningsrist af gerð 2 hér á eftir.
Teningsrist af gerð 2 (3:G2): Sker í teninga,
notuð með 14 og 20 mm fínskurðarskífu.
Rist fyrir franskar kartöflur (3:H). Sker beinar
kartöflulengjur, notuð með 10 mm
fínskurðarskífu.
Rifskurðarskífa (3:K). Rífur gulrætur, hvítkál,
hnetur, ost, þurrt brauð.
Fínrifskífa (3:L). Fínrífur hráar kartöflur,
harðan/þurran ost.
ÍSETNING Á SKURÐARSKÍFUM
Lyftið upp þrýstiplötunni (1:A) og snúið henni
til vinstri á arminum eða fjarlægið
sjálfmatarann.
Snúið láshringnum (1:B) rangsælis og lyftið
mataranum/lokinu (1:C).
Rennið útmötunarskífunni (1:D) upp á öxulinn
og snúið/þrýstið henni niður í festingu sína.
Ef skera á í teninga eða hakka lauk, leggið
þá fyrst viðeigandi teningsrist í vélina og
snúið teningsristinni réttsælis þangað til hún
stöðvast.
Veljið síðan viðeigandi skífu: skurðarskífu,
teningaskífu eða fínskurðarskífu fyrir
teningaskurð og fínskurðarskífu fyrir
laukhökkun. Rennið skurðarskífunni upp á
öxulinn og snúið henni þannig að hún falli í
festingu sína.
Þegar skera skal, strimla eða rífa hráefnið,
rennið þá aðeins viðeigandi skurðarskífu upp
á öxulinn og snúið henni þannig að hún falli í
festingu sína.
Skrúfið hnífskrúfuna (1:J) fasta rangsælis á
miðhólk skurðrskífunnar.
Fellið niður matarann/lokið og snúið
láshringnum réttsælis í læsta stöðu.
LOSUN Á SKURÐARSKÍFUM
Lyftið þrýstiplötunni (1:A) upp og snúið henni
til vinstri, eða fjarlægið sjálfmatarann.
Snúið láshringnum (1:B) rangsælis og lyftið
upp mataranum/lokinu.

Related product manuals