2. Tækislýsing og innihald (myndir 1/2)
2.1 Tækislýsing
1. Þrýstitengi
2. Burðarhaldfang
3. Vatnsaftöppunarlok
4. Sogtengi
5. Forsíuskrúfa
6. Loftaftöppunarskrúfa
7. Forsía
8. Einstefnuloki
9. Lykill fyrir forsíuskrúfu
2.2 Innihald
n Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr
umbúðunum.
n Fjarlægið umbúðirnar og festingar umbúða /
tækis (ef slíkt er til staðar).
n Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu.
n Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort
að flutningaskemmdir séu að finna.
n Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að
ábyrgðartímabil hefur runnið út.
VARÚÐ
Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng!
Börn mega ekki leika sér með plastpoka,
plastfilmur né smáhluti! Hætta er á að hlutir geti
fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!
n Garðdæla
n Lykill fyrir forsíuskrúfu
n Notandaleiðbeiningar
3. Tilætluð notkun
Tilætluð notkun:
n Til þess að væta og vökva græn svæði,
grænmetisgarða og garða
n Til notkunar við garðúðara
n Til þess að dæla vatni úr tjörnum, lækjum,
regntunnum, regnvatnssöfnurum og brunnum.
n Til að dæla neysluvatni
Efni sem dæla má:
n Til þess að dæla fersku vatni (ósöltu), regnvatni
og létt basísku vatni / neysluvatni.
n Hámarks hiti þess vökva sem dælt er stanslaust
má ekki fara yfir 35°C.
n Þessu tæki má ekki dæla eldfimum vökvum,
gasmyndandi vökvum eða vökvum sem valdið
geta sprengingum.
n Bannað er að dæla ætandi vökvum (sýru, basa,
gerjandi vökva og þessháttar), einnig er bannað
að dæla vökvum með slípandi efnum (sandi).
n Þetta tæki er ekki ætlað til þess að dæla
drykkjarvatni.
Einungis má nota þetta tæki í þau verk sem lýst er í
notandaleiðbeiningunum. Öll önnur notkun sem fer út
fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir
skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum,
er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi
tækisins.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki
framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskini, í
iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka
notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það
notað í iðnaði, í atvinnuskini eða í tilgangi sem á
einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.
4. Tæknilegar upplýsingar
Rafmagnstenging 230 V ~ 50 Hz
Afl: 900 Vött
Dælumagn án einstefnuloka: 4100 l/klst
Dælumagn með einstefnuloka: 3800 l/klst
Hámarks dæluhæð 48 m
Hámarks dæluþrýstingur 0,48 MPa (4,8 bar)
Hámarks soghæð 8 m
Þrýstitengi: um það bil 33,3 mm (R1 IG)
Sogtengi: um það bil 42 mm (R11/4 AG)
Hámarks vatnshiti. 35°C
Öryggisgerð: IPX4
5. Fyrir notkun
5.1 Sogleiðslutengi
n Þvermál sogleiðslu, hvort sem er slanga eða rör
ætti að vera að minnstakosti 25 mm (1“); Ef að
soghæðin er yfir 5 m er mælt með um það bil
32mm (1 1/4“) slöngu.
n Festið sogventil (fótventil) með sogkörfu við
sogleiðsluna.
n Leggið sogleiðsluna frá vatninu að tækinu þannig
að hún halli uppávið. Forðist endilega að leggja
sogleiðsluna yfir dæluhæð, loftbólur í
sogleiðslunni tefja eða stöðvar dælingu.
n Tengja verður sog- og þrýstileiðslurnar þannig að
þær valdi ekki spenningi á tæki.
n Sogventillinn ætti að vera nægjanlega djúpt ofan í
vatninu þannig að það sé komið í veg fyrir að
dælan fari að ganga tóm ef að vatnsyfirborðið fer
75
ISL