• Tryggið að tækið sé notað á
stöðugu og jöfnu undirlagi.
• Forðist að láta tækið vera
berskjaldað fyrir beinu sólarljósi.
• Loftræstitækið má aðeins nota innan
hitastigsbilsins 16° til 35° C.
• Lokið hurðum og gluggum þegar
tækið er notað til að bæta
kæliáhrifin.
• Notið ekki tækið í umhverfi þar sem
er bleyta eða raki.
• Verið viss um að það séu engar
hindranir milli tækisins og
fjarstýringarinnar. Kastið ekki
fjarstýringunni né látið hana detta.
Dýfið ekki fjarstýringunni í neinn
vökva né látið hana vera
berskjaldaða fyrir hita eða beinu
sólarljósi.
Notkun rafhlaðna:
• VARÚÐ! Það getur myndast
sprengihætta ef ekki er skipt rétt
um rafhlöður. Skiptið aðeins út
rafhlöðum með sömu tegund.
Athugið að rafskautin snúi rétt.
• Látið rafhlöður (rafhlöðupakka eða
innsettar rafhlöður) ekki vera
berskjaldaðar fyrir óhóflegum hita frá
sólarljósi, eldi, o.s.frv. Verjið fyrir
vélrænum höggum. Haldið þurru og
hreinu. Geymið þar sem börn ná ekki
til.
• Opnið ekki, takið í sundur né skerið
upp rafhlöðurnar né látið þær verða
fyrir skammhlaupi. Notið ekki gamlar
og nýjar rafhlöður saman.
• Fargið rafhlöðunum á réttan hátt.
Takið tillit til umhverfislegra atriða
þegar rafhlöðum er fargað. Fargið
þeim ekki með heimilisúrgangi.
• Farið eftir öryggisábendingunum og
öðrum athugasemdum á rafhlöðunni
og umbúðum hennar.
• Fjarlægið rafhlöður sem leka og
hreinsið rafhlöðuhólfið vandlega.
Forðist snertingu við augu og húð.