Ef það er enn ekki OK (B) skaltu stilla
aftur á kaldari stillingu.
5.4 Frysta fersk matvæli
Frystihólfið hentar til þess að frysta fersk
matvæli og geyma frosin og djúpfrosin
matvæli til lengri tíma.
Til að frysta fersk matvæli skal virkja
FastFreeze aðgerðina minnst 24
klukkustundum áður en maturinn sem á
að frysta er settur í frystihólfið.
Dreifið fersku matvælunum jafnt yfir öll
hólfin eða skúffurnar talið ofan frá.
Hámarksmagn matvæla sem hægt er að
frysta á sólarhring án þess að bæta við
öðrum ferskum matvælum er tilgreint á
merkiplötunni (merkingu sem staðsett er
inni í heimilistækinu).
Að frystiferlinu loknu, fer heimilistækið
sjálfkrafa aftur í fyrri hitastillingu (sjá
„FastFreeze aðgerðina“).
Í þessu ástandi, gæti
hitastigið inn í kælinum
breyst dálítið.
Til að fá frekari upplýsingar, sjá
„Ábendingar um frystingu“.
5.5 Geymsla á frosnum
matvælum
Þegar heimilistækið er virkjað í fyrsta
sinn eða eftir notkunarhlé skal láta það
ganga í minnst 3 klukkustundir áður en
vörurnar eru settar í hólfið með kveikt á
FastFreeze aðgerðinni.
Geymið matinn ekki nær hurðinni en 15
mm.
VARÚÐ!
Ef þiðnun verður fyrir slysni,
til dæmis af því að rafmagnið
fer af, og rafmagnsleysið
hefur varað lengur en gildið
sem sýnt er á merkiplötunni
undir „hækkunartími“, þarf
að neyta þídda matarins fljótt
eða elda hann strax, kæla
og frysta hann svo aftur.
5.6 Þíðing
Djúpfrosinn eða frosinn mat er hægt að
þíða í kælinum í eða í plastpoka undir
köldu vatni, áður en maturinn er notaður.
Þessi aðgerð veltur á því hversu mikill
tími er til boða og tegund matarins. Litla
bita má jafnvel elda frosna.
6. ÁBENDINGAR OG GÓÐ RÁÐ
6.1 Ábendingar um
orkusparnað
• Kælir: Skilvirkasta notkun orku er
tryggð í þeirri uppsetningu að skúffum
í neðri hluta heimilistækisins og.hillum
sé jafnt dreift. Staðsetning kassa í
hurð hefur ekki áhrif á orkunotkun.
• Ekki opna hurðina oft eða hafa hana
opna lengur en nauðsyn krefur.
• Frystir: Því kaldari sem stillingin er,
því meiri orku notar hún.
• Kælir: Ekki still á of háan hita til að
spara orku nema eiginleikar matarins
krefjist þess.
• Ef umhverfishitastigið er hátt,
hitastýringin stillt á lágan hita og
heimilistækið fullhlaðið, getur verið að
þjappan sé stöðugt í gangi, en það
getur valdið því að hrím eða ís hlaðist
utan á eiminn. Í þessu tilfelli skaltu
setja hitastýringuna í átt að hærra
hitastigi til að leyfa sjálfvirka þíðingu
og spara orku á þann hátt.
www.electrolux.com28