105
Hentugar ábendingar
Ráðleggingar til að spara orku
Við ráðleggjum þér að fylgja ábendingum að neðan til að
spara orku.
• Skildu hurðina eftir opna í eins stuttan tíma og mögulegt er
(til að spara orku).
• Gakktu úr skugga um að tækið sé ekki haft of nálægt
hitagjöfum (til dæmis beinum geislum sólar, rafmagnsofni
eða eldavél).
• Ekki stilla hitastigið lægra en nauðsynlegt er.
• Ekki geyma heitan mat eða rokgjarna vökva í skápnum.
• Staðsettu tækið í vel loftræstu svæði án raka. Sjá kaa um
uppsetningu á nýju tæki.
• Sýni myndin rétta uppsetningu á skúum, grænmetishól
og hillum breytir þú henni ekki (hún er skipulögð með sem
besta orkunýtni fyrir augum).
Ábendingar varðandi kælingu á ferskum mat
• Ekki setja heit matvæli í kæliskápinn (sé það gert hækkar
hitinn í honum og þjappan þarf að vinna meira og nýtir því
meiri orku).
• Breiddu yr mat eða settu umbúðir um hann, sérstaklega
ef hann er bragðsterkur.
• Staðsettu öll matvæli þannig að loft geti leikið frjálst um
þau.
Ábendingar varðandi kælingu
• Kjöt (allar tegundir): Pakkaðu því í plastlmu og settu
á glerhilluna fyrir ofan grænmetisskúuna. Fylgdu
viðmiðunarreglum framleiðanda um hámarksgeymslutíma á
matvælum og best fyrir dagsetninguna.
• Eldaður matur, kaldir réttir, o..:
Breiddu yr og settu þá á hvaða hillu sem er.
• Ávextir og grænmeti:
Það ætti að geyma í til þess ætlaðri skúu.
• Smjör og ostur:
Pakkaðu þessu í loftþétta plastpoka eða plastlmu.
• Mjólkurfernur:
Lokaðu með loki og geymdu í hurðarhillunum.
Ábendingar vegna frystingar
• Láttu skápinn vera í gangi í að minnsta kosti 2 klst. á
köldustu stillingu við upphaf notkunar eða ef tækið hefur
staðið ónotað áður en matur er settur inn í hann.
• Tilreiddu matvæli í smáum skömmtum þannig að hægt sé
að frysta þau hratt í gegn (aðeins skal afþíða það magn sem
á að nota).
• Vefja skal matvælum í loftþéttan álpappír eða plastlmu.
• Ekki leyfa ferskum, ófrosnum matvælum að komast í
snertingu við frosin matvæli (til að hækka ekki hitastig frosnu
matvælanna).
• Ef þú neytir frystra matvæla strax og þau eru tekin úr
frystinum getur það leitt til frostbruna.
• Merktu allar frystar matvælapakkningar með dagsetningu
til að geta fylgst með geymslutímanum.
Ábendingar varðandi geymslu á frosnum mat
• Gakktu úr skugga um að fryst matvæli ha fengið rétta
meðferð í versluninni.
• Þegar frosin matvæli hafa þiðnað eyðileggjast þau jótt og
ekki má frysta þau á ný. Ekki fara fram yr geymslutímann
sem genn er af framleiðandanum.
Slökkva á tækinu
Ef slökkva þarf á tækinu í lengri tíma, gerðu þá eftirfarandi
(til að koma í veg fyrir myglumyndun).
1. Taktu út öll matvæli.
2. Aftengdu tækið frá vegginnstungunni.
3. Þrífðu og þurrkaðu tækið vel að innan.
4. Sjáðu til þess að allar hurðir séu skildar eftir örlítið
opnar þannig að loft geti leikið um.