EasyManua.ls Logo

AEG CCE84751CB - Page 33

AEG CCE84751CB
56 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Ef yfirborð heimilistækisins er sprungið
skal samstundis aftengja það frá aflgjafa.
Þetta er til að koma í veg fyrir raflost.
Notendur sem eru með gangráð verða að
vera í að lágmarki 30 cm fjarlægð frá
spanhellum þegar heimilistækið er í gangi.
Heit olía getur skvest þegar þú setur mat í
hana.
Aldrei nota opinn eld þegar innbyggður
gufugleypir er í notkun.
AÐVÖRUN!
Hætta á eldsvoða og sprengingu
Fita og olíur geta losað eldfimar gufur
þegar þær eru hitaðar. Haltu eldi eða
hituðum hlutum fjarri fitu og olíu þegar þú
notar þær við matreiðslu.
Gufur sem mjög heit olía losar geta valdið
fyrirvaralausum bruna.
Notuð olía sem getur innihaldið matarleifar
getur valdið eldsvoða við lægra hitastig en
olía sem er notuð í fyrsta skipti.
Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með
eldfimum efnum í, nálægt, eða á
heimilistækið.
AÐVÖRUN!
Hætta á skemmdum á heimilistækinu.
Ekki geyma heit eldunarílát á
stjórnborðinu.
Ekki setja heitt pönnulok á gleryfirborð
helluborðsins.
Ekki láta eldunaráhöld sjóða þangað til að
þau þorna.
Gættu þess að láta hluti eða eldunarílát
ekki detta á heimilistækið. Það getur
skemmt yfirborðið.
Ekki kveikja á eldavélinni ef á henni eru
tóm eldunarílát eða engin eldunarílát.
Ekki setja álpappír á heimilistækið.
Aldrei fjarlægja netið eða síu
gufugleypisins þegar innbyggði
gufugleypirinn eða heimilistækið er í
notkun.
Aldrei nota innbyggða gufupleypinn án
síunnar.
Ekki hylja inntakið á innbyggða
gufugleypinum með eldunarílátum.
Ekki opna botnlokið þegar innbyggði
gufugleypirinn eða heimilistækið er í
notkun.
Ekki nota litla eða létta hluti nálægt
innbyggða gufugleypinum til að forðast að
þeir festist þar.
Eldhúsáhöld úr steypujárni eða með
skaddaðan botn geta valdið rispum á
glerinu/glerkeramík. Lyftu alltaf þessum
hlutum upp þegar þú þarft að hreyfa þá til
á eldunaryfirborðinu.
2.4 Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
Slökktu á heimilistækinu og láttu það kólna
fyrir hreinsun.
Notaðu ekki vatnsúða og gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum
klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni.
Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni
eða málmhluti.
2.5 Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið. Notaðu eingöngu
upprunalega varahluti.
Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós
sem varahluti sem seld eru sérstaklega:
Þessi ljós eru ætluð að standast
öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum
eins og hitastig, titring, raka eða til að
senda upplýsingar um rekstrarstöðu
tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í
öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í
herbergjum heimila.
2.6 Förgun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða köfnun.
Hafðu samband við staðbundin yfirvöld
fyrir upplýsingar um hvernig farga skuli
heimilistækinu.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
ÍSLENSKA 33

Related product manuals