Tilkynningin kemur ekki í veg fyrir notkun á
helluborðinu.
AÐVÖRUN!
Ofmettuð sía getur skapað eldhættu.
Sían tekin í sundur / sett saman
Sían og síuhólfið er staðsett rétt undir
grindinni í miðju helluborðsins. Farðu varlega
við að fjarlægja það þar sem það gæti verið
sleipt vegna uppsöfnunar á feiti.
1. Fjarlægðu grindina.
2. Taktu síuhólfið út.
3. Ýttu hlutunum tveimur varlega utan frá inn
á við og brjóttu þá saman. Taktu svo
síuna úr síuhólfinu.
4. Settu síubúnaðinn saman eftir hreinsun:
a. Renndu síunni inn í síuhlífina eftir þar
til gerðum, innbyggðum,
rennum.Gakktu úr skugga um að
svörtu hliðarnar snúi inn á við og að
silfurlituðu hilðarnar snúi út. Að
samsetningu lokinni ættir þú að geta
séð svörtu hliðina inni í holrýminu.
b. Settu síuhólfið aftur í holrými
gufugleypisins.
Síuhólfið hreinsað
Þvoðu síuhólfið í höndunum með mildu
hreinsiefni og mjúkum klút. Einnig getur þú
sett það í uppþvottavél.
Hreinsun á síu
1. Þvoðu síuna í volgu vatni án hreinsiefna.
Hreinsiefni geta eyðilagt lyktarsíuna. Þú
getur notað mjúkan svamp, mjúkan klút
eða bursta sem rispar ekki til að fjarlægja
matarleifar ef þörf er á. Þú getur einnig
þvegið síuna í uppþvottavél við 65-70°C
(notaðu kerfi sem varir lengur en
90mín),án uppþvottaefnis ogán þess að
diskar séu í sömu hleðslu.
2. Þurrkaðu síuna í ofni í 20-30 mín við 70
°C. Settu síuna á miðju vírhilluna. Gakktu
úr skugga að blástursaðgerð sé ekki
notuð. Að öðrum kosti getur þú látið síuna
þorna yfir nótt við stofuhita. Sían þarf að
vera þornuð að fullu áður en hún er sett
saman aftur.
3. Settu síubúnaðinn saman aftur og settu
hann í holrými gufugleypisins.
48 ÍSLENSKA