EasyManua.ls Logo

AEG IKB64431IB - Góð Ráð

AEG IKB64431IB
124 pages
Go to English
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Til að nota gufugleypinn í stjórnborði
þess skal afvirkja sjálfvirka stillingu
aðgerðarinnar.
Þegar lokið hefur verið við eldun og
slökkt er á helluborðinu kann vifta
gufugleypis enn að vera í gangi í
ákveðinn tíma. Eftir þann tíma slokknar
sjálfkrafa á viftunni og komið er í veg fyrir
virkjun viftunnar fyrir slysni næstu 30
sekúndurnar.
Handvirk stýring á viftuhraða
Einnig er hægt að stýra aðgerðinni handvirkt.
Ýttu á þegar helluborðið er virkt til að gera
það. Þetta slekkur á sjálfvirkri stjórnun
aðgerðarinnar og greiðir fyrir að hægt sé að
breyta viftuhraðanum handvirkt. Þegar þú ýtir
á er viftuhraðinn aukinn um einn. Þegar þú
nærð áköfu stigi og ýtir aftur á stillist
viftuhraðinn á 0 sem slekkur á viftu
gufugleypis. Til að ræsa viftuna aftur á
viftuhraða 1 skal ýta á
.
Afvirkjaðu helluborðið og virkjaðu það
aftur til að virkja sjálfvirka stjórnun
aðgerðarinnar.
Virkjun ljóssins
Þú getur stillt helluborðið þannig að það
kveiki sjálfkrafa á ljósinu þegar þú virkjar
helluborðið. Þá er sjálfvirk stilling stillt á H1 –
H6.
Ljósið á gufugleypinum slokknar 2
mínútum eftir að slökkt er á helluborðinu.
7. GÓÐ RÁÐ
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
7.1 Eldunarílát
Á spanhelluborðum búa sterk
rafsegulsvið til hitann mjög hratt í
eldunarílátum.
Notaðu spanhelluborð með viðeigandi
eldunarílátum.
Til að koma í veg fyrir ofhitnun og til að
bæta afköst í eldunarhellunum verða
eldunarílát að vera eins þykk og flöt og
mögulegt er.
Gakktu úr skugga um að botnar á
eldunarílátum séu hreinir og þurrir áður en
þeir eru settir á yfirborð helluborðsins.
Gættu þessu ávallt að renna ekki eða
nudda eldunarílátum við hornin á glerinu
þar sem kvarnast gæti úr glerinu eða
yfirborð þess orðið fyrir skemmdum.
Efni eldunaríláta
rétt: steypujárn, glerhúðað stál, ryðfrítt
stál, marglaga botn (með réttum
merkingum frá framleiðanda).
ekki rétt: ál, kopar, látún, gler, keramik,
postulín.
Eldunarílát virka fyrir spanhelluborð ef:
vatn sýður mjög fljótlega á hellu sem stillt
er á hæstu hitastillingu.
segull togar í botninn á eldunarílátinu.
Mál eldunaríláta
Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að
málum á botni eldunarílátanna.
Skilvirkni eldunarhellunnar er tengd málum
eldunarílátanna. Eldunarílát með minna
þvermál en uppgefið lágmark fær aðeins
hluta af aflinu sem eldunarhellan
framkallar.
Af öryggisástæðum og til að ná fram
ákjósanlegri útkomu eldunar skaltu ekki
nota eldunarílát sem eru stærri en gefið er
upp í „Upplýsingar um eldunarhellur“.
Forðastu að hafa eldunarílát nálægt
stjórnborðinu á meðan eldun stendur.
Þetta gæti haft áhrif á virkni stjórnborðsins
eða virkjað óvart aðgerðir í helluborðinu.
ÍSLENSKA 75

Related product manuals