Íslenska – 2
renna til á sleipu undirlagi og að kastast fram af hjólinu á
stömu undirlagi. Við sum skilyrði geta inngrip af þessu tagi
hins vegar gert að verkum að hemlunarvegalengdin
lengist. Haga skal aksturslagi eftir umhverfisskilyrðum og
færni ökumanns hverju sinni.
u VIÐVÖRUN – gáleysislegt aksturslag
ABS-kerfið má ekki verða til þess að ekki sé sýnd nægileg
aðgát í akstri. Það er fyrst og fremst ætlað sem
öryggisbúnaður í neyðartilvikum. Hjóla verður í samræmi
við aðstæður hverju sinni.
u VIÐVÖRUN – bremsað í beygjum
ABS-kerfið er öryggisbúnaður sem dregur úr hættu á því
að hjól læsist. Þegar bremsað er í beygjum er alltaf aukin
hætta á að detta af hjólinu. Hjóla verður í samræmi við
aðstæður hverju sinni.
u VIÐVÖRUN – inngrip ABS-kerfisins vara í
takmarkaðan tíma.
Við erfið skilyrði getur verið að ABS-kerfið nái ekki að
grípa inn í þar til rafhjólið hefur stöðvast. Ef
frambremsunni er sleppt í stutta stund getur ABS-kerfið
aftur bremsað. Haga skal aksturslagi eftir
umhverfisskilyrðum og færni ökumanns hverju sinni.
u VIÐVÖRUN – rafhjólið getur oltið
Við erfið skilyrði getur ABS-kerfið ekki alltaf komið í veg
fyrir að rafhjólið velti (t.d. ef hjólað er með farangur með
háan þyngdarpunkt eða ef þyngdarpunkturinn er of hár
vegna þess að hnakkurinn er stilltur á of mikla hæð, t.d.
vegna of lítils stells, breytilegs undirlags, mikils bratta
niður í móti). Haga skal aksturslagi eftir
umhverfisskilyrðum og færni ökumanns hverju sinni.
u VIÐVÖRUN – loft í vökvakerfi
Ef loft hefur komist inn í hemlakerfið skerðir það
virkni og notagildi ABS-kerfisins til muna. Vegna lofts
í kerfinu er ekki hægt að byggja upp eins mikinn
hemlunarþrýsting, sérstaklega eftir að ABS-kerfið
grípur inn í og handfang frambremsunnar færist nær
stýrinu. Ef fingur eru milli stýrisins og handfangs
frambremsunnar er hætta á að þeir klemmist á milli
vegna þessa. Áður en hjólað er af stað skal því alltaf taka í
bremsuna til að athuga hvort þrýstipunkturinn er
greinilegur og hvort handfang frambremsunnar er
nægilega langt frá stýrinu. Þrýstipunkturinn á að vera við
u.þ.b. 1/3 af hreyfisviði frambremsunnar. Ef vafi leikur á
þessu skal stilla hreyfisvið frambremsunnar á
hámarksstöðu. Ef loft hefur borist inn í bremsukerfið skal
láta fagaðila sjá um að lofttæma það. Haga skal aksturslagi
eftir umhverfisskilyrðum og færni ökumanns hverju sinni.
u VIÐVÖRUN – athuga þarf ABS-stýrieiningu
Áður en hjólað er af stað skal athuga hvort ABS-
stýrieiningin er vel fest við gaffalinn. Ef ABS-stýrieiningin
losnar getur hún lent í teinunum og valdið slysi.
u VIÐVÖRUN – takmörkuð virkni á meðan
hugbúnaðaruppfærsla fer fram
Á meðan hugbúnaðaruppfærsla fer fram getur verið að
ABS-kerfið sé óvirkt og að engar upplýsingar séu veittar
með ABS-gaumljósinu. Mælt er með því að hjóla ekki á
rafhjólinu á meðan hugbúnaðaruppfærsla stendur yfir.
u VARÚÐ – skemmdir á íhlutum og hætta á að klemmast
á milli
Gæta verður þess að íhlutir á borð við bremsubarka og
snúrur og líkamshlutar klemmist ekki á milli ABS-
stýrieiningarinnar og stellsins. Þannig er einnig komið í
veg fyrir skemmdir og meiðsl þegar stýrinu er snúið alla
leið.
u ATHUGAÐU – bremsuvökvi má ekki komast í snertingu
við stýrieininguna
Þegar unnið er að viðhaldi á ABS-kerfinu verður að gæta
þess að ABS-stýrieiningin komist ekki í snertingu við
bremsuvökva. Ef ABS-stýrieiningin kemst í snertingu við
bremsuvökva er ekki hægt að ábyrgjast að búnaðurinn
virki rétt allan endingartímann. Í þessu tilviki skal hreinsa
bremsuvökvann af stýrieiningunni eins fljótt og mögulegt
er. Viðhald og viðgerðir verða að fara fram á faglegan hátt.
Sérstakar öryggisleiðbeiningar fyrir ABS Pro
u VIÐVÖRUN – sérstakir notkunarmátar ABS Pro fyrir
sérstök notkunartilvik
Í boði eru eftirfarandi notkunarmátar fyrir ABS Pro: Trail
Pro og Race. Notkunarmátarnir eru útfærðir með
mismunandi hætti. Í notkunarmátanum Race er lyftivörn á
afturhjóli óvirk. Hægt er að slökkva á notkunarmátunum
eftir þörfum (með svokallaðri „Off“-stillingu). Ávallt skal
haga aksturslagi eftir umhverfisskilyrðum og færni
hjólreiðamanns hverju sinni og nota viðeigandi
hlífðarbúnað.
u VIÐVÖRUN – ABS Pro-stýringin er takmörkuð
ABS Pro er ætlað til að koma í veg fyrir ofhemlun á
framhjóli í upphafi, en ekki til að aðstoða við hemlun þar
til rafhjólið stöðvast. Ef frambremsunni er sleppt í stutta
stund getur ABS-kerfið aftur bremsað. Haga skal
aksturslagi eftir umhverfisskilyrðum og færni ökumanns
hverju sinni.
Upplýsingar um persónuvernd
Þegar rafhjólið er tengt við Bosch DiagnosticTool3 eða
þegar skipt er um hluta rafhjólsins er tæknilegum
upplýsingum um rafhjólið þitt (t.d. um framleiðanda, gerð,
auðkenni hjólsins, stillingagögn) og notkun þess (t.d. um
heildartíma á ferð, orkunotkun, hitastig) miðlað til Bosch
eBike Systems (Robert Bosch GmbH) í því skyni að vinna úr
fyrirspurn frá þér, veita þjónustu eða stuðla að vöruþróun.
Frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga er að
finna á www.bosch-ebike.com/privacy-full.
Lýsing á vöru og eiginleikum
Fyrirhuguð notkun
ABS-kerfið fyrir rafhjól frá Bosch (ABS= Anti-lock Braking
System) af kynslóðinni the smart system aðstoðar
ökumann við að halda góðri stjórn á reiðhjólinu þegar
bremsað er og eykur þannig öryggi. Við erfiða hemlun er
hemlunarþrýstingi á frambremsu stýrt og hjólið þannig gert
stöðugra. Hvorki má gera breytingar á ABS-kerfinu né taka
það af.
0 275 008 3AS | (17.02.2024) Bosch eBike Systems