48
slöngunni. Skiptið um dælu ef með þarf.
• Fargið ekki dælunni og hað samband við Halyard
Health til að fá leiðbeiningar um vöruskil.
• Rennslishraðinn getur verið mismunandi af ýmsum
ástæðum:
Áfyllingarrúmmál
• Ef dælan er fyllt minna en geð er upp veldur það meiri
innrennslishraða.
• Ef dælan er fyllt meira en geð er upp veldur það minni
innrennslishraða.
Seigja og/eða styrkur lyfs
• Uppgenn rennslishraði HOMEPUMP ECLIPSE*
dælunnar byggir á notkun venjulegrar saltlausnar til
þynningar.
• Ef ly eða öðru þynningarefni er bætt við getur það
breytt seigju og valdið meiri eða minni rennslishraða.
Notkun 5% dextrósa veldur 10% lengri lyagjafartíma.
Staðsetning dælunnar - Staðsetjið dæluna í um það bil
sömu hæð og holleggsstaðurinn er.
• Ef dælan er staðsett ofar eykst rennslishraðinn.
• Ef dælan er staðsett neðar minnkar rennslishraðinn.
Hitastig
• Hitastig hefur áhrif á seigju lausnarinnar og veldur styttri
eða lengri lyagjafartíma.
• HOMEPUMP ECLIPSE* dælan er gerð til að nota við
stofuhita (20°C/68°F).
• Rennslishraðinn eykst um það bil 1,4% fyrir hverja
0,6°C/1°F hækkun hitastigs og minnkar um það bil
1,4% fyrir hverja 0,6 °C/1°F lækkun hitastigs.
• Dælan og slöngur skulu vera yr fatnaði.
• Eftir geymslu í kæli eða frysti skal láta dæluna ná
stofuhita áður en hún er notuð. Það getur tekið
dælu nokkrar klukkustundir að ná stofuhita, allt eftir
fyllingarrúmmáli. (Taa 1)
• Til að tryggja réttan rennslishraða skal ekki nota hita- eða
kuldameðferð mjög nálægt rennslisstýringarleiðslum.
Geymsla
• Lyagjafartími kann að lengjast umtalsvert við langan
geymslutíma.
Ytri þrýstingur
• Ef beitt er ytri þrýstingi til dæmis með því að kreista eða
leggja ofan á dæluna, eykur það rennslishraðann.
Holleggur/aðgangsbúnaður
• Við lyagjöf með miðlægum eða útlægum hollegg skal
fylgja leiðbeiningum frá framleiðanda holleggs. Miðlægar
holleggslínur (PICC) sem settar eru í útlægt og eru minni en
20 GA x 56 cm (eða annar takmarkandi búnaður) draga úr
rennslishraða.
Ábendingar
HOMEPUMP ECLIPSE* dælan er ætluð fyrir samfellda lyagjöf
í æð.
Frábendingar
HOMEPUMP ECLIPSE* dælan er ekki ætluð fyrir blóð,
blóðafurðir, lípíð, tueyti eða næringu í æð (TPN).
Leiðbeiningar um notkun
Notið smitgátaða aðferð
Fyllt á HOMEPUMP ECLIPSE* dæluna: (mynd 2)
Athugið: Farið eftir hefðbundnu verklagi og viðkomandi
reglugerðum við áfyllingu dælunnar.
1. Lokið klemmunni.
2. Fjarlægið hettuna af áfyllingartenginu og geymið til
notkunar síðar.
3. Hægt er að fylla á HOMEPUMP ECLIPSE* dæluna
með sprautu eða sambærilegu tæki. Fjarlægið allt
loft úr áfyllingartækinu og festið áfylltu sprautuna við
áfyllingartengið. (Mynd 2)
4. Snúið dælunni við eins og sýnt er. Takið þétt í sprautuna
með báðum höndum og þrýstið samfellt niður á bulluna
þar til rúmmálið er geð. Meðhöndlið ekki dæluna
meðan á áfyllingu stendur þar sem endi sprautunnar gæti
brotnað. Endurtakið eftir þörfum.
Mynd 2
Varúð: Fyllið ekki minna en lágmark eða meira en
hámark fyllingarrúmmáls (sjá sérstakar upplýsingar um
fyllingarrúmmál fyrir hverja gerð í töu 1).
5. Takið áfyllingartækið af áfyllingartenginu.
6. Setjið hettuna aftur á áfyllingartengið. Tryggið að hettan á
arenda slöngunnar sé þétt á.
7. Merkið með viðeigandi upplýsingum um lyf og sjúkling.