EasyManua.ls Logo

Landmann E Pantera - Almennar Leiðbeiningar

Landmann E Pantera
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
159
E Pantera
IS
Almennar leiðbeiningar
Ef þú hefur spurningar eða þarft aðstoð í sambandi við grillið þitt eða örugga notkun þess skaltu hafa samband við þjónustudeild
umboðsins á þínu svæði. Notið tengiliðaupplýsingar á heimasíðunni okkar www.landmann.com
Með Landmann rafmagnsgrillinu getur þú grillað, steikt, og bakað með útkomu sem erfitt er að ná með venjulegum
innanhússeldhúsáhöldum. Maturinn fær þetta „utandyra“-bragð vegna þess að maturinn er grillaður undir lokuðu loki. Rafmagn er
auðvelt í notkun og gefur þér meiri stjórn á matseldinni heldur en kol.
Þessar leiðbeiningar munu upplýsa þig um þær lágmarkskröfur sem þarf fyrir uppsetningu Landmann rafmagnsgrillsins. Vinsamlegast
lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en Landmann rafmagnsgrillið er tekið í notkun. Röng samsetning getur verið hættuleg.
Þetta Landmann rafmagnsgrill er ekki ætlað til notkunar í viðskiptalegum tilgangi.
Skiljið Landmann rafmagnsgrillið ekki eftir án eftirlits meðan á notkun stendur.
Ekki má gera breytingar á neinum íhlutum sem innsiglaðir eru af framleiðandanum.
Allar breytingar á tækinu geta verið hættulegar.
Framkvæmið sjónræna skoðun á rafmagnssnúru, innstungu og stjórnhnappi hitaeiningar til að gá að skemmdum og sliti fyrir notkun.
Þegar grillið er hitað upp í fyrsta skipti gæti það gefið frá sér brunalykt. Grillið er að brenna aukaleg smurefni sem er að finna á
hitaeiningunni. Þetta hefur ekki áhrif á öryggi grillsins.
Til að koma í veg fyrir bruna eða raflost skal ávallt láta viðurkenndan rafvirkja skipta um rásir eða innstungur ef þess með þarf.
Innstungur með ófullnægjandi jarðtenginu gætu valdið raflosti.
Haldið tengingum þurrum og frá jörðu. Látið ekki snúru hanga yfir borðbrún þar sem hægt er að hrasa um hana eða börn geta togað
í hana.
Breiðið yfir grillið eða geymið á stað sem er veðurvarinn þegar það er ekki í notkun.
Þrífið grindina og eldunarhólfið eftir hverja notkun.
GEYMSLA Á GRILLINU OG/EÐA GRILLIÐ ER EKKI Í NOTKUN
Þegar ekki er verið að nota Landmann rafmagnsgrillið á hitastillishnappurinn með rafmagnssnúrunni að vera í „OFF“-stöðu og það
verður að vera ÓTENGT og geymt innandyra.
NOTKUN
VIÐVÖRUN: Ekki má nota Landmann rafmagnsgrillið fyrir neðan eldfimt yfirborð.
VIÐVÖRUN: Ekki má setja Landmann rafmagnsgrillið upp í tómstundaökutækjum og húsbílum og/eða bátum.
VIÐVÖRUN: Notið grillið ekki innan 60 cm (24 in) frá eldfimum efnum fyrir aftan eða til hliðar við grillið.
VIÐVÖRUN: Gjörvallt eldunarhólfið verður heitt við notkun. Skiljið grillið ekki eftir án eftirlits.
VIÐVÖRUN: Haldið öllum rafmagnssnúrum frá heitum yfirborðsflötum.
VIÐVÖRUN: Haldið öllum eldfimum gufum og vökvum eins og bensíni, steinolíu og alkóhóli o.s.frv. og öðrum eldfimum
efnum frá matreiðslusvæðinu.
VIÐVÖRUN: Við matreiðslu skal tækið standa á jöfnu og stöðugu yfirborði á svæði sem engin eldfim efni er að finna.
VIÐVÖRUN: Losið algjörlega um rafmagnssnúruna fyrir notkun. Haldið snúrunni frá eldunarhólfinu.

Related product manuals