EasyManua.ls Logo

AEG BBB8002QB - Förgun; Innri Lýsing; Notkun Glervöru; Þjónusta

AEG BBB8002QB
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Ef þú notar ofnasprey skaltu fara eftir öryggisleiðbeiningum á umbúðum þess.
2.5 Notkun glervöru
Meðhöndlun glervörunnar án viðeigandi varúðar getur leitt til að hún brotni, flísist úr henni,
sprungur myndist eða verulegar rispur:
Ekki hella köldu vatni eða öðrum vökvum á glervöruna vegna þess að skyndileg lækkun
hitastigs kann að valda því að glerið brotni samstundis. Glerbrot geta verið afskaplega beitt
og erfitt að staðsetja þau.
Settu ekki heitar glervörur á blautt eða kalt yfirborð, beint á eldhúsbekk eða málmflöt; eða
meðhöndlaðu heitar glervörur með blautum klút.
Notaðu ekki eða gerðu við glervöru sem flísast hefur úr, er sprungin eða er verulega rispuð.
Misstu ekki eða sláðu glervöru utan í harða hluti eða berðu áhöldum í hana.
Ekki skal hita tóma eða næstum tóma glervöru í örbylgjuofni, eða ofhita olíu eða smjör í
örbylgjuofni (notaðu lágmarkseldunartíma).
Leyfðu heitri glervöru að kólna í kæligrind, pottaleppi eða þurrum klút. Gakktu úr skugga um að
glervaran sé nægilega köld fyrir þvott, kælingu eða frystingu.
Forðastu að meðhöndla heita glervöru (þar með talið vöru með sílikon-gripflötum) án þurra
pottaleppa.
Forðastu misnotkun örbylgjuofns (þ.e. láta ofninn ganga án álags eða á litlu álagi).
2.6 Innri lýsing
AÐVÖRUN!
Hætta á raflosti.
Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós sem varahluti sem seld eru sérstaklega: Þessi ljós
eru ætluð að standast öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum eins og hitastig, titring, raka
eða til að senda upplýsingar um rekstrarstöðu tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í
öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í herbergjum heimila.
Þessi vara inniheldur ljósgjafa í orkunýtniflokki G.
Notaðu aðeins ljós með sömu tæknilýsingu.
2.7 Þjónusta
Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til að gera við heimilistækið.
Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
2.8 Förgun
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum eða köfnun.
Hafðu samband við staðbundin yfirvöld fyrir upplýsingar um hvernig skuli farga
heimilistækinu.
Aftengdu tækið frá rafmagni.
Klipptu rafmagnssnúruna af upp við heimilistækið og fargaðu henni.
Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í veg fyrir að börn eða gæludýr festist inni í
heimilistækinu.
240/344
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR

Table of Contents

Related product manuals