Þegar hreinsun lýkur:
Slökktu á ofninum og hinkraðu
þar til hann hefur kólnað.
Hreinsaðu rýmið með mjúkum klút. Fjarlægðu leifar í botni rýmisins.
11.5 Áminning um hreinsun
Ofninn minnir þig á að hreinsa með eldglærinu.
blikkar á skjánum í 5 sek eftir hverja eldunarlotu.
Til að slökkva á áminningunni skal fara í Valmynd og
velja Stillingar, Áminning um hreinsun.
11.6 Hvernig á að fjarlægja og setja
upp: Hurð
Þú getur fjarlægt hurðina og innri
glerplöturnar til að hreinsa þær. Fjöldi
glerplata er mismunandi eftir gerðum.
AÐVÖRUN!
Hurðin er þung.
VARÚÐ!
Meðhöndlaðu glerið varlega, einkum í
kringum brúnir fremri plötunnar. Glerið
getur brotnað.
1. skref Opnaðu hurðina að fullu.
2. skref Lyftu og þrýstu á klemmustangirnar
(A) á hurðarlömunum tveimur.
3. skref Lokaðu ofnhurðinni í fyrstu opnunarstöðu (um það bil 70° halli). Haltu hurðinni á báðum hliðum og
togaðu hana frá ofninum skáhallt upp. Settu hurðina með ytri hliðina niður á mjúkan klút á stöðugan
flöt.
4. skref Haltu í hurðarklæðninguna (B) við
efstu brún hurðarinnar á báðum
hliðum og þrýstu inn á við til að losa
klemmuþétti.
5. skref Togaðu hurðarklæðninguna fram á
við til að fjarlægja hana.
6. skref Haltu hurðarglerplötunum á efstu
brún á hverri fyrir sig og togaðu þær
upp úr rásinni.
122 ÍSLENSKA