1. ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki
ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af
rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf
leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt er að
nálgast þær til síðari notkunar.
1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
• Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu,
mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið
veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef
þau skilja hættuna sem því fylgir. Halda skal börnum yngri
en 8 ára gömlum og fólki með mjög miklar og flóknar fatlanir
frá heimilistækinu, nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
• Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar fyrir einstaklinga (þar
með talið börn) með skerta líkamlega, skynræna eða
andlega getu, eða skortir reynslu og þekkingu, nema þeir
hafi fengið umsjón eða leiðbeiningar varðandi notkun
tækisins af einstaklingi sem ber ábyrgð á öryggi þeirra.
• Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér
ekki með heimilistækið og fartækið með My AEG Kitchen .
• Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á
viðeigandi hátt.
• VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
meðan á notkun stendur. Haltu börnum og gæludýrum fjarri
heimilistækinu þegar það er í notkun og þegar það kólnar.
• Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
• Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald
á heimilistækinu án eftirlits.
1.2 Almennt öryggi
• Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til matreiðslu.
98 ÍSLENSKA